Fjárlög 2001

Föstudaginn 08. desember 2000, kl. 12:17:47 (3029)

2000-12-08 12:17:47# 126. lþ. 44.13 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 126. lþ.

[12:17]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að hv. 17. þm. Reykv. hafi misskilið mig ef hún túlkaði orð mín þannig að ég væri að tala um að stjórnarandstaðan í fjárln. væri sammála tillögum okkar. Það kemur í ljós þegar þar að kemur. Ég var hins vegar að þakka fyrir samstarfið í nefndinni. Við erum vissulega ósammála um marga hluti en það hefur ekki komið niður á samstarfinu í nefndinni. Ég var að þakka samstarfið en ekki að draga stjórnarandstöðuna til fylgis við tillögur meiri hlutans. Mér hefur aldrei komið það í hug. Ég hef kannski ekki kveðið nógu skýrt að orði í því sambandi en ég leiðrétti það þá hér með.

Varðandi liðinn sem hv. þm. bað um frekari skýringar á þá er þetta safnliður undir umhvrn. Inn á honum var óskipt 1 millj. Þegar höfðu verið veittar til umhverfissamtaka 2 millj. Í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um þetta mál vildum við rýmka möguleika umhvrh. til að veita umhverfissamtökum styrk og þess vegna var þessi hækkun gerð. Það er skýringin á þessari hækkun.