Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tel reyndar ekki að þessi ræða sé líkleg til að vekja traust á viðkomandi en við skulum sjá.
En auðvitað er það þannig að þegar ég hef verið að lýsa því hvað þyrfti að gerast varðandi vextina með sama hætti og hæstv. utanrrh. til að slá á þenslu --- okkur hefur mislíkað hve þenslan hefur verið mikil og höfum verið að vinna að því að slá á hana með aðgerðum af þessu tagi. Á sama hátt höfum við talið nauðsynlegt við þessar aðstæður að hafa verulegan og mikinn afgang á ríkissjóði af því að það voru ákveðin hættumerki sem ég hef margoft tekið fram. Það er þess vegna sem við erum að gera það. Það er ekki til gamans að við neitum fjölmörgum góðum tillögum hér um eyðslu og útgjöld. Það er vegna þess að við erum sammála um að þetta beri að gera.
Og á nákvæmlega sama hátt og hæstv. utanrrh. sagði á fundi í hádeginu í gær, hygg ég vera, eða í fyrradag, þá erum við að velja tímann til einkavæðingar á þessum stóru fyrirtækjum vegna þess að við teljum að það vinni gegn þeim hættupunktum sem menn hafa séð. Ég hef sagt að þær aðgerðir sem við gerum séu þess eðlis að við bregðumst við aðvörunarmerkjunum, þess vegna er engin stórhætta á ferðum. Rétt eins og sjúklingur sem fær einkenni um lasleika á einhverjum stöðum fær sína meðferð og aðgerðirnar virka. Við, hæstv. utanrrh. og ég, erum hjartanlega sammála um öll þessi atriði. Ég veit að það hryggir hv. þm. en þannig er þetta. Menn eru sammála um þau meginviðhorf hvernig bregðast eigi við hvað þetta varðar.