Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. beindi til mín nokkrum spurningum. Í fyrsta lagi varðandi verðlagsforsendur frv. Ég tók það fram í andsvari í dag að við fórum yfir verðlagsforsendurnar í fjárln. og fulltrúar fjmrn. gerðu okkur grein fyrir þeim. Þeir töldu ekki ástæðu til breytinga á þeim og við fórum yfir það. Að sjálfsögðu verða þær endurskoðaðar í ljósi þróunarinnar á næsta ári þegar kemur fram á árið.
Varðandi svo sparnað í lyfjakostnaði þá hefur, eins og hv. þm. er kunnugt, verið í undirbúningi kerfisbreyting varðandi þátttöku neytenda í lyfjakostnaði, að þeir sem nota lítið af lyfjum borgi hærri hluta í kostnaðinum en hinir sem þurfa mikið af lyfjum. Þetta hefur tekið lengri tíma en áætlað var í upphafi en breytingin er enn áformuð. Hins vegar gæti það tekið einhvern tíma, jafnvel fram á árið, að koma þessu í gagnið.
Varðandi barnabætur og kosningaloforð þá er vissulega greinarmunur á kosningastefnuskrám og stjórnarsáttmála. Hins vegar hefur hér verið stigið mikilvægt skref. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mikilvægt að stíga þetta skref fyrir þennan aldurshóp. Ég ætla svo að geyma frekari útlistingar til seinna andsvars.