Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 412  —  327. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um hafnaáætlun 2001–2004.

(Lögð fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)



    Alþingi ályktar skv. 24. gr. hafnalaga, nr. 23/1994, að árin 2001–2004 skuli framkvæmdum í hafnamálum hagað samkvæmt eftirfarandi hafnaáætlun.

I. Áætlaðar fjárveitingar ríkissjóðs.
a)     Til hafnaframkvæmda samkvæmt hafnalögum.
    Upphæðir í millj. kr. Tölur í svigum tákna að til er ónotuð fjárveiting.

Kjördæmi 2001 2002 2003      2004


Höfn
Til nýframkvæmda
Til uppgjörs

Fjárveitingar alls
Til nýframkvæmda
Til uppgjörs

Fjárveitingar alls
Til nýframkvæmda
Til uppgjörs

Fjárveitingar alls
Til nýframkvæmda
Til uppgjörs

Fjárveitingar alls

Samtals
2001–2004
Vesturland
Akranes 0,0 0,0 52,8 0,0 52,8 59,4 0,0 59,4 67,0 0,0 67,0 179,2
Borgarnes 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 2,4 (0,1) 2,3 0,0 0,0 0,0 2,3
Snæfellsbær 31,9 6,5 38,4 60,7 0,0 60,7 43,3 0,0 43,3 37,1 0,0 37,1 179,5
Grundarfjörður 83,1 83,1 21,0 0,0 21,0 9,8 0,0 9,8 0,0 0,0 0,0 113,9
Stykkishólmur 1,4 7,4 8,8 13,2 0,0 13,2 8,3 0,0 8,3 46,2 0,0 46,2 76,5
Búðardalur 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 1,5 0,0 1,5 0,0 0,0 0,0 1,5
116,4 13,9 130,3 147,7 0,0 147,7 124,7 (0,1) 124,6 150,3 0,0 150,3 552,9
Vestfirðir
Reykhólahöfn 0,0 0,0 2,7 (0,1) 2,6 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 2,6
Vesturbyggð 2,0 (0,4) 1,6 16,3 0,0 16,3 0,0 0,0 0,0 11,0 0,0 11,0 28,9
Tálknafjörður 3,8 (2,3) 1,5 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 1,5
Bolungarvík 20,7 (5,9) 14,8 8,2 0,0 8,2 12,0 0,0 12,0 6,0 0,0 6,0 41,0
Ísafjarðarbær 33,4 (24,8) 8,6 33,8 0,0 33,8 49,8 0,0 49,8 59,6 0,0 59,6 151,8
Súðavík 4,2 (0,6) 3,6 9,7 0,0 9,7 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 13,3
Drangsnes 4,2 0,3 4,5 1,0 0,0 1,0 2,5 0,0 2,5 0,0 0,0 0,0 8,0
Hólmavík 5,7 (5,7) 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 6,0 0,0 6,0 6,0
74,0 (39,4) 34,6 71,7 (0,1) 71,6 64,3 0,0 64,3 82,6 0,0 82,6 253,1
Norðurland vestra
Hvammstangi 13,1 (13,1) 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
Skagaströnd 1,5 0,7 2,2 7,7 0,0 7,7 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 9,9
Skagafjörður 41,5 (2,3) 39,2 43,4 0,0 43,4 0,2 0,0 0,2 18,2 0,0 18,2 101,0
Siglufjörður 54,1 (4,6) 49,5 9,4 0,0 9,4 18,9 0,0 18,9 40,2 0,0 40,2 118,0
110,2 (19,3) 90,9 60,5 0,0 60,5 19,1 0,0 19,1 58,4 0,0 58,4 228,9
Norðurland eystra
Hafnasamlag Eyjafjarðar 0,0 18,4 18,4 47,5 0,0 47,5 36,8 0,0 36,8 18,3 0,0 18,3 121,0
Hafnasamlag Norðurlands 65,9 (4,8) 61,1 25,1 0,0 25,1 34,7 0,0 34,7 40,8 0,0 40,8 161,7
Grímsey 0,0 0,0 7,0 (1,5) 5,5 0,6 0,0 0,6 10,8 0,0 10,8 16,9
Húsavík 192,8 32,4 225,2 0,0 155,6 155,6 88,8 0,0 88,8 12,0 33,4 45,4 515,0
Kópasker 3,7 (1,3) 2,4 4,6 0,0 4,6 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 7,0
Raufarhöfn 9,1 (4,5) 4,6 8,7 0,0 8,7 229,5 0,0 229,5 0,0 0,0 0,0 242,8
Þórshöfn 56,3 (1,0) 55,3 63,9 0,0 63,9 24,6 0,0 24,6 97,6 0,0 97,6 241,4
327,8 39,2 367,0 156,8 154,1 310,9 415,0 0,0 415,0 179,5 33,4 212,9 1.305,8
Austurland
Bakkafjörður 0,0 0,0 10,9 0,0 10,9 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 10,9
Vopnafjörður 14,6 0,3 14,9 104,9 0,0 104,9 73,4 0,0 73,4 11,4 0,0 11,4 204,6
Borgarfjörður eystri 5,6 5,6 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 5,6
Hafnasamlag A-Héraðs og Fella 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 21,1 0,0 21,1 0,0 0,0 0,0 21,1
Seyðisfjörður 39,7 (1,8) 37,9 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 37,9
Fjarðabyggð 78,1 11,8 89,9 88,2 0,0 88,2 11,2 0,0 11,2 26,2 0,0 26,2 215,5
Fáskrúðsfjörður 19,2 0,7 19,9 0,0 0,0 0,0 22,1 0,0 22,1 9,5 0,0 9,5 51,5
Breiðdalsvík 5,0 (5,0) 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
Djúpivogur 83,2 (36,4) 46,8 28,3 0,0 28,3 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 75,1
Hornafjörður 40,8 1,1 41,9 7,8 0,0 7,8 96,4 0,0 96,4 137,1 0,0 137,1 283,2
286,2 (29,3) 256,9 240,1 0,0 240,1 224,2 0,0 224,2 184,2 0,0 184,2 905,4
Suðurland
Vestmannaeyjar 91,5 35,0 126,5 108,4 0,0 108,4 121,0 15,1 136,1 128,1 11,7 139,8 510,8
Þorlákshöfn 17,9 1,5 19,4 6,3 34,0 40,3 39,5 12,0 51,5 19,9 3,6 23,5 134,7
109,4 36,5 145,9 114,7 34,0 148,7 160,5 27,1 187,6 148,0 15,3 163,3 645,5
Reykjanes
Grindavík 50,5 157,5 208,0 101,4 10,0 111,4 0,0 93,1 93,1 91,4 61,8 153,2 565,7
Sandgerði 64,0 24,3 88,3 45,6 0,0 45,6 29,6 0,0 29,6 0,0 85,3 85,3 248,8
Hafnasamlag Suðurnesja 0,0 9,4 9,4 17,3 0,0 17,3 0,0 0,0 0,0 57,8 0,0 57,8 84,5
Hafnarfjörður 0,0 9,0 9,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 9,0
114,5 200,2 314,7 164,3 10,0 174,3 29,6 93,1 122,7 149,2 147,1 296,3 908,0
Óskipt til slysavarna o.fl.
8,7

(7,5)

1,2

8,2

0,0

8,2

10,5

0,0

10,5

22,0


22,0

41,9
Rannsóknir o.fl. 10,0 10,0 15,0 15,0 15,0 15,0 15,0 15,0 55,0
Samtals 1.157,2 194,3 1.351,5 979,0 198,0 1.177,0 1.062,9 120,1 1.183,0 989,2 195,8 1.185,0 4.896,5

b)     Önnur hafnamannvirki.

2001 2002 2003 2004
Lendingarbætur 2,8 3,0 3,0 3,0
Ferjubryggjur 5,7 6,0 6,0 6,0
Samtals 8,5 9,0 9,0 9,0

II. Sundurliðun framkvæmda í einstökum höfnum.
    Skýringar við töflu: Frumáætlun Siglingastofnunar um heildarkostnað við framkvæmdir. Í aftasta dálki þátttökuhlutfall ríkissjóðs.
    Verðlag miðast við áætlað meðaltal ársins 2001 (byggingarvísitala 254 stig). Upphæðir í millj. kr.

Höfn Hlutur ríkissjóðs
Verkefni 2001 2002 2003 2004
VESTURLAND
Akranes
Dýpkun við aðalhafnargarð í 8–9 m (.3.000 m² spr.) og viðhaldsdýpkun 52,0 75%
Stálþil aðalhafnargarði, 1.–3. áfangi, 160 m, dýpi 8–9 m, lagnir og þekja (3.200 m²) 23,0 80,0 57,0 60%
Klæðning á austurhlið Ferjubryggju, 60 m þybbuklæðning úr asobe og uppsetning á þybbum 5,7 60%
Endurröðun og styrking á grjótvörn aðalhafnargarði (150 m – .8.000 m³) 24,0 75%
Endurnýjun skipalyftu. Hliðarfærslusleði, nemabúnaður og raflagnir 19,0 19,0 60%
Borgarnes
Bryggjurif, grjót og kjarnafylling (.3.200 m³) við gömlu bryggjuna og frágangur við þá nýju 4,0 60%
Snæfellsbær
Arnarstapi:
Lenging grjótgarðs (30–35 m, .14.000 m³) og dýpka (spr. svæði .2.000 m²) 38,0 38,0 75%
(Viðhaldsdýpkun/ ljós í bryggjustiga, sjá Ólafsvík) 75%
Rifshöfn:
Staurakista, endurbygging og lenging um 10 m, stálþil (35 m, dýpi 4 m) 24,0 60%
Ljúka endurbyggingu trébryggju (5.18 m, dýpi 3,5 m) og rif á eldri bryggju 24,0 60%
Lenging stálþils, 80 m, dýpi 6 m lagnir og þekja (1.600 m²) 50,8 23,0 60%
(Viðhaldsdýpkun/ ljós í bryggjustiga, sjá Ólafsvík) 60%
Ólafsvík:
Lenging á flotbryggjum, 20 m og 10 m og slitlag á tengibraut (klæðning .300 m²) 5,7 60%
Ljós í bryggjustiga Ólafsvík, Rifi og Arnarstapa (40 stigar alls) 4,3 60%
Endurbygging á fenderklæðningu trébryggju 20,0 60%
Styrking og endurbygging grjótvarnar Suðurgarðs 19,0 75%
Dýpkun, viðhalda dýpi í innsiglingum og höfnum Ólafsvík, Rifi og Arnarstapa (.25.000 m³) 1,0 1,0 12,0 75%
Grundarfjörður
Lenging Stórubryggju, stálþil (100 m, dýpi 8 m), lagnir, lýsing og þekja 88,0 35,0 60%
Lenging Stórubryggju, grjótvörn norðan á (.18.000 m³) 40,4 75%
Smábátaaðstaða, dýpkun (.3.000 m³) 3,4 75%
Smábátaaðstaða, uppsátur (5.30 m), flotbryggja (10 m), fylling, frág. fláa, lýsing vatns- og raflögn 10,0 60%
Öryggismál, stigar á flotbryggju, laga og setja ljós í stiga Stórubryggju og Suðurgarði 2,0 60%
Stykkishólmur
Skipavík, ljósamasturs- og vatnshús 2,4 60%
Stálþil næst brúarbás Súgandisey, 20 m, dýpi 6 m, lagnir og þekja (300 m²) 16,0 5,0 60%
Dýpkun í höfn við þil Súgandisey og víðar (gröbbun .5.000 m³) 7,0 75%
Dráttarbraut Skipavík, styrkja braut, nýr sleði, 16 hliðarf.vagnar, rif á görðum og st. plan (3.000 m²) 6,0 77,0 60%
Dalabyggð
Gamla bryggjan Búðardal, endurbyggja kanttré, þybbur, stiga og þekju (70 m²) 2,5 60%
174,5 223,3 204,7 236,7
VESTFIRÐIR
Reykhólar
Dýpkun, grabbað upp meðfram bryggju (.1.500 m³) 3,6 75%
Vesturbyggð
Patreksfjörður:
Innsigling lagfærð, dýpkun (grafið .11.000 m³) og grjótvörn á enda Oddans 21,7 75%
Endurbygging þekju (1.000 m³) 8,3 60%
Endurbygging stálþils, undirbúningsframkvæmd (um 280 m þil byggt 1948) 10,0 60%
Bíldudalur:
Flotbryggja, lenging (20 m) 3,4 60%
Tálknafjörður
Þekja við stálþil, lagnir og lýsing (steypt 300 m², klæðning 900 m²) 6,3 60%
Ísafjarðarbær
Þingeyri
Rífa gömlu trébryggjuna við ytri hafnargarð og ganga frá kanti 4,8 60%
Uppsátur fyrir smábáta (skáplan 5.30 m) 3,4 60%
Flateyri
Endurbygging hafnarkants, frágangur, lagnir og þekja (1.400 m²) 16,1 60%
Suðureyri
Stækkun smábátahafnar 14,0 60%
Dýpkun innsiglingarrennu í 5 m (10.000 m³, dæling) 6,4 75%
Ísafjörður
Tengibraut Ásgeirsbakki – Sundahöfn (uppgjör) 20,0 60%
Sundahöfn, lagnir, lýsing og þekja (1.400 m²) við stálþilsbakka 16,1 6,1 60%
Endurbyggja flotbryggju Sundahöfn (70 m) 11,5 60%
Viðgerðarbryggja skipasmíðastöðvar, staurabr. úr stáli og harðvið (38 m) 19,8 60%
Bátahöfn við Olíumúla, lokið endurbyggingu 28,0 60%
Dýpkun við Olíumúla og viðgerðarbryggju (.24.000 m³ – gröftur) 44,0 75%
Ferjubryggja Sundahöfn, lenging, staurabryggja úr harðviði (17 m) 11,4 60%
Ásgeirsbakki, endurbygging, 1. áfangi, stálþil með kantbita (85 m, dýpi 8 m) 50,0 60%
Dráttarbraut, endurbygging á braut, vagni og spili m.v. 400 þungatonna skip 30,0 60%
Bolungarvík
Grundargarður, breikkun og grjótvörn á .300 m kafla (24.000 m³) 27,6 75%
Brjóturinn, niðurrif skjólveggs og þekja að 20 m línu (.600 m²) 13,6 60%
Tengibraut Lækjarbryggja – Grundargarður 20,0 60%
Brjóturinn, endurbygging stálþils efst við Brjótinn – undirbúningsframkvæmd
10,0

60%
Súðavík
Viðlegubryggja við Suðurgarð lengd (15 m léttbyggð timburbryggja – dýpi 3 m) 7,0 60%
Suðurgarður, þvergarður og styrking á núverandi garði (.7.000 m³) 12,9 75%
Drangsnes
Drangsnesbryggja, hækkun efri hluta bryggju, steypt þekja (400 m²) og veggur (18 m) 7,0 60%
Kokkálsvík, slitlag við bryggjur (klæðning 1.000 m²) 1,7 60%
Kokkálsvík, flotbryggja (20 m) 4,1 60%
Hólmavík
Bæta aðstöðu smábáta, flotbryggja 9,5 60%
Stálþilsbryggja endurbyggð, undirbúningsframkvæmdir 10,0 60%
116,4 109,7 96,1 136.1
NORÐURLAND VESTRA
Hvammstangi
Dýpkun hafnar í 5–6 m og innsiglingin í 7 m, sprengt að hluta (5.000 m³) 17,5 75%
Skagaströnd
Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur 2,0 75%
Dýpkun í höfn og innsiglingu (10.000 m³ dæling/gröftur) 10,3 75%
Skagafjörður
Sauðárkrókur
Stálþil Norðurgarði, endurbygging og lenging, 130 m, dýpi 8,5 m, lagnir og þekja (2.600 m²) 62,8 52,0 60%
Dýpkun, snúningssvæði og innsigling í 8 m, við þil í 8,5 m (30.000 m³) 16,2 75%
Sandfangari, lenging um 30 m 14,0 75%
Tengibraut Hafnargarður – Sandeyri (800 m² – var á áætlun '99 en frestað) 5,5 60%
Hofsós
Lenging Þvergarðs um 5 m (.1000 m³) 4,8 75%
Norðurgarður, styrking á grjótvörn 5,9 75%
Haganesvík
Viðhaldsdýpkun 0,3 0,3 75%
Siglufjörður
Óskarsbryggja, 75 m þil, dýpi 10 m, steypt þekja 1.500 m² 65,4 15,7 60%
Dýpkun í 9 m við Óskarsbryggju og á siglingaleið (30.000 m³ dæling) 16,2 75%
Togarabryggja, endurnýjun þekju (malbik) 4,5 60%
Smábátahöfn, viðlegubryggja við vesturkant (40 m) 11,8 60%
Styrking á grjótvörn norðan við Brjót 5,7 60%
Roaldsbryggja við Síldarminjasafn (göngubryggja 75.3,0 m) 14,0 60%
Bæjarbryggja, endurbygging, 1. áfangi, stálþil (100 m, dýpi 8 m) 67,0 60%
173,5 94,2 31,8 92,4
NORÐURLAND EYSTRA
Hafnasamlag Eyjafjarðar
Ólafsfjörður:
Loðnulöndunarkantur, endurnýja staura (84 m, .1/3 hluti) 24,9 60%
Togarabryggja, rífa trébryggju, 40 m stálþil, dýpi 7 m, lagnir og þekja (800 m³) 30,9 12,7 60%
Viðhaldsdýpkun í innsiglingu og höfn (dæling, 12.000 m³) 6,5 75%
Innsigling í Vesturhöfn, frágangur garðsenda 20,0 60%
Dalvík:
Endurröðun og styrking grjótvarnar Suðurgarði, öldudempandi flái við verbúð (alls .8.000 m³) 18,0 75%
Timburbryggja Suðurgarði, endurbygging (65 m) 38,6 60%
Árskógssandur/Hauganes:
Upptökubraut Árskógssandi (5.20 m) 2,3 60%
Hauganes, grjótvörn á hafnarsvæði við gömlu bryggjuna (.500 m³) 1,0 60%
Hrísey
Aðstaða fyrir ferju, lenging stálþils/dýpkun (óvisst) 10,0 60%
Hafnasamlag Norðurlands
Hjalteyri:
Viðhaldsdýpkun 0,3 1,1 75%
Akureyri:
Fiskihöfn, dýpkun, 2. áfangi (91.000 m³) 41,2 75%
Fiskihöfn, Vesturbakki, stálþil, 2. áfangi (70 m, dýpi 9 m, þekja 1.400 m²) 51,4 19,7 60%
Uppsátur fyrir smábáta (skáplan 5.20 m) 2,3 60%
Tangabryggja lengd, Sverrisbryggja rifin, stálþil 30 m, dýpi 8 m, lagnir og þekja (600 m²)
4,4

22,1

8,1


60%
Dýpkun, Krossanes, 2. áfangi (40.000 m³) og uppgjör, dýpkun fyrir olíuskip (framkv. 2000, 13 m.kr.) 34,6 75%
Stálþil við Krossanes, 2. áfangi (80 m, dýpi 9 m), rekið niður þil og steyptur kantur 5,0 63,0 60%
Ísbryggja ÚA endurbyggð, undirbúningsframkvæmdir 5,0 60%
Grímsey
Endurbygging fremsta hluta hafnargarðs, þekja (.300 m²) og skvettmúr 11,6 60%
Úttekt og endurbygging á kervegg við fremri hluta aðalhafnargarðs (25 m) 1,0 8,4 60%
Lokið styrkingu grjótvarnar á hafnargarði, grjót úr landi (500 m³) 7,7 75%
Húsavík
Brimvarnargarður við Böku (300.000 m³ – grjót á lager 30.000 m³) 509,0 75%
Stálþilsbryggja, endurbygging/nýbygging 148,0 20,0 60%
Kópasker
Endurbyggja steypta þekju á bryggju (330 m²) 3,0 60%
Viðlegubryggja smábáta (15 m flotbryggja) 3,2 60%
Dýpkun hafnar (10.000 m³ dæling) 6,1 75%
Raufarhöfn
Löndunarbryggja við bræðslu, lagnir, lýsing og steypt þekja (1.000 m²) 15,2 60%
Dýpkun innsiglingarrennu í 8,5–10 m (22.300 m² klapparsprenging) 7,5 306,0 75%
Frágangur vegna niðurrifs á bryggjum, grjóthleðsla við Hótel Norðurljós (120 m) 5,1 60%
Þórshöfn
Dýpkuð innsigling í 8,5 m, höfn í 8–9 m snúningssvæði og að stálþili
(.80.000 m³ gröftur, spr. að hluta)
75,0 124,0 75%
Stálþil 135 m, dýpi 9 m, lagnir og þekja (2.700 m²) 106,5 36,5 60%
Ytri leiðarljós 3,6 75%
Grjótflái við tengibraut (á áætlun 2000 en frestað) 7,7 60%
705,0 253,4 605,2 264,6
AUSTURLAND
Bakkafjörður
Lenging Löndunarbryggju, harðviðarbryggja (20 m, dýpi 3 m) 11,2 60%
Lenging Sjafnarbryggju, léttbyggð furubryggja (20 m, dýpi 2,5 m) 7,0 60%
Vopnafjörður
Löndunarbryggja, stálþil, lagnir og þekja (1.600 m²) 24,3 60%
Skjólgarður sunnan Ásgarðs (.125.000 m³) 136,3 75%
Tengibraut, Miðbryggja – Lýsisbryggja (.1.800 m² klæðning og lýsing) 4,5 60%
Brimvarnargarður, út í Miðhólma og þaðan í átt að Húkk (75.000 m³) 97,8 75%
Miðbryggja lagfærð 19,0 60%
Borgarfjörður eystri
Dýpkun sunnan gömlu bryggju og í bátakví (.3.600 m³) 7,4 75%
Hafnasamlag Austur-Héraðs og Fella
Dýpkun og skjólgarður vegna ferju Lagarfljóti 15,6 75%
Bryggja fyrir Lagarfljótsferju, trébryggja 35 m, dýpi 2,5 m 15,6 60%
Seyðisfjörður
Dýpkun rennu við Fjarðarhöfn í 8 m dýpi og dýpkun við dráttarbraut (.90.000 m³) 50,0 75%
Bryggja við Fjarðarhöfn, frágangur 3,6 60%
Fjarðabyggð
Neskaupstaður:
Lenging Togarabryggju, stálþil (70 m, dýpi 9 m, þekja 1.400 m²) 49,7 19,6 60%
Dýpkun vegna færslu flotbryggju (15.000 m³) og stækkun hafnar (100.000 m³) 8,4 57,9 75%
Skjólgarður norðan hafnar (.200 m, dælt undir garð og efni tekið úr núverandi garði að hluta) 56,0 44,0 75%
Stálþil við bræðslu lengt um 52 m, í 100 m, dýpi 9 m, 1. áfangi, þil með kanti 43,7 60%
Eskifjörður:
Hafskipakantur, efniskostnaður vegna lengingar stálþils úr 80 í 130 m (uppgjör) 18,6 60%
Fáskrúðsfjörður
Stækkun Loðnulöndunarbryggju (harðviðarbryggja 40 m, dýpi 7 m) 32,0 60%
Endurbygging Bæjarbryggju, 1. áfangi (50 m, dýpi 7 m), lagnir, lýsing og þekja (1.000 m²) 36,9 15,8 60%
Breiðdalsvík
Gengið frá lögnum og lokið við þekju (1.080 m²) – á áætlun '99 en frestað 8,4 60%
Djúpivogur
Dýpkun Gleðivík (3.500 m² í 9 m, gröftur, að hluta sprengt) 36,5 75%
Löndunarkantur 75 m, dýpi 9 m, grjótvarin fylling (49.000 m³), lagnir og þekja (1.425 m²) 93,0 47,1 60%
Hornafjörður
Faxeyrarhöfn, umhverfismat og undirbúningur 10,0 75%
Viðhaldsdýpkun (25.000 m³ hvert ár – er 15.000 í núgildandi áætlun) 10,4 10,4 10,4 10,4 75%
Leiðigarðar norðan og sunnan hafnarmynnis og leiðigarður út frá Mikley (.8.000 m³) 18,0 75%
Smábátaaðstaða vestan Óslandsbryggju 20,0 60%
Faxeyrarhöfn, skjólgarður (.15.000 m³) og dýpkun (.400.000 m³) 24,0 108,0 75%
Grynnslin dýpkun, undirbúningsframkvæmd 30,0 35,0 75%
Stálþilsbryggja, 100 m, dýpi 8 m, lagnir og þekja (2.000 m²) 80,1 30,3 60%
Raflögn í Hvanneyjarvita 5,0 75%
427,7 338,0 329,0 267,2
SUÐURLAND
Vestmannaeyjar
Nausthamarsbryggja, lokið endurbyggingu (þil 360 m, dýpi 5–9 m, þekja 4.640 m² steypt) 67,2 47,3 60%
Dýpkun við bryggjur í 8 m, Nausthamar, Friðarhafnarkantur (dæling/gröftur .35.000 m³) 22,2 75%
Friðarhöfn, Ísk./suðurk., endurbætt þil 140 m, dýpi 9 m, lagnir, þekja (steypt 1.500/malb. 1.200 m²) 57,5 64,3 60%
Smábátahöfn, flotbryggjur 30 m og 2.40 m, lýsing og lagnir við bryggjur 22,2 60%
Friðarhöfn, norður-/austurk., endurbætt þil 150 m, dýpi 8 m, lagnir, þekja (steypt 3.400 m²) 46,9 75,1 60%
Dýpkun hafnar, Pyttur í 8 m, snúningssv. 210 m í 7,5 m (grafið/dælt 78.000 m³, að hluta spr.) 50,0 50,0 75%
Friðarhöfn, vesturk., endurbætt þil 195 m, dýpi 8 m, lagnir, þekja (steypt .2.200 m²) 64,0 86,0 60%
Dýpkun í innsiglingu, viðhaldsdýpkun (gröftur 35.000 m³) 52,0 75%
Þorlákshöfn
Dýpkun innan hafnar (.50.000 m³ sprengt og grafið að hluta) 90,0 75%
Tunna á garðsenda Suðurvarargarði, úrbætur samkvæmt tillögum frá maí '97 8,4 75%
Loðnulöndunarbryggja, stálþil 70 m, dýpi 9 m 65,9 22,3 60%
Dýpkun í innsiglingu og höfn, viðhaldsdýpkun (.20.000 m³ dæling) 10,8 60%
236,9 189,1 255,0 221,1
REYKJANES
Grindavík
Skjólgarður vestan innsiglingar (80.000 m³) 101,9 75%
Skjólgarður austan innsiglingar (100.000 m³) 135,2 75%
Rif á þverbryggju við Svíragarð, og flotbryggja (uppgjör) 21,0 60%
Dýpkun hafnar við Svíragarð (6.200 m² í 7–8 m) og dýpkun á svæðum A–E (uppgjör 25 millj. kr.) 105,0 75%
Sandgerði
Dýpkun á svæði A við Norðurgarð í 8 m og B við Suðurbryggju í 5 m (14.500 m² spr.) 165,3 75%
Norðurgarður, lenging, stálþil 50 m, dýpi 8 m, lagnir og þekja (1.000 m²) 42,1 15,3 60%
Suðurbryggja norðurhlið, stálþil 80 m, dýpi 6 m, lagnir og þekja (1.600 m²) 60,6 24,3 60%
Uppsátur fyrir smábáta (skáplan 5.30 m) 3,2 60%
Löndunarbryggja við Fiskmarkað, harðviðarbryggja (30 m, dýpi 5 m) 21,9 60%
Hafnasamlag Suðurnesja
Reykjanesbær:
Öldudempari Helguvík, sprengt berg við suðurhluta hafnar 16,1 75%
Festipollar við vestur- og austurenda viðlegu í Helguvík (2 stk. 100 t pollar) 2,4 60%
Grjótgarður Njarðvík styrktur og lengdur, 60 m 5,0 77,0 75%
309,3 234,6 49,4 203,0
ALLT LANDIÐ
Óskipt til slysavarna o.fl. (styrkhæfni ýmist 60% eða 75%, meðaltal áætlað 67%) 13,0 12,2 15,7 32,8 67%
2.156,3 1.454,5 1.586,9 1.453,9
Samtals árin 2001–2004: 6.651,6
Þar af hlutur ríkisins: 4.483,1
Hlutur hafnarsjóða: 2.168,5

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


1. Inngangur.
    Þingsályktun um hafnaáætlun 1999–2002 var samþykkt á Alþingi í febrúar 1999.
    Undirbúningur að gerð hafnaáætlunar fyrir árin 2001–2004 hófst með því að sent var bréf til hafnarstjórna í janúar 2000. Óskað var eftir að þær gerðu grein fyrir framkvæmdaþörf og æskilegri forgangsröðun verkefna. Svör bárust frá 45 aðilum af þeim 48 sem fengu send gögn. Lauslega áætlað var heildarkostnaður við framkvæmdir, sem sveitarfélögin töldu þörf á að lokið yrði á áætlunartímabilinu, rúmir 16,5 milljarðar kr. (verðlag í ársbyrjun 2000).
    Við val verkefna nú var, eins og við gerð síðustu hafnaáætlunar, stuðst við reiknilíkan sem gefur framkvæmdum stig á grundvelli þarfagreiningar. Stigagjöfin er samsett úr tveimur aðalþáttum. Annars vegar er tekið mið af umsvifum hafnanna og hins vegar af þeim úrbótum sem hver framkvæmd skilar viðkomandi höfn. Þarfagreiningin, sem gefin var út í Hafnalýsingu (Vita- og hafnamálastofnun, september 1996), var endurskoðuð og notuð sem forsendur í reiknilíkanið.
    Samhliða því sem ný hafnaáætlun er lögð fram er hún send út til umsagnar hjá hafnarstjórnum og þeim gefinn frestur til að skila umsögn og athugasemdum til Siglingastofnunar Íslands eins og kveðið er á um í hafnalögum og reglugerð um hafnamál. Athugasemdum mun verða komið á framfæri við samgöngunefnd áður en tillagan verður afgreidd frá henni.
    Nú er í gangi vinna við gerð samgönguáætlunar sem nær til hafna, flugvalla og vega og er fyrirhugað að leggja hana fram haustið 2002. Einnig er verið að semja frumvarp til nýrra hafnalaga. Þetta hvort tveggja mun hafa áhrif á það hvenær hafnaáætlun verður næst tekin til endurskoðunar.
    Allar kostnaðartölur í áætluninni eru á áætluðu verðlagi um mitt ár 2001 (byggingarvísitala 254 stig).

2. Meginþættir hafnaáætlunar.
    Samkvæmt tillögu að hafnaáætlun eru eftirfarandi framkvæmdir áformaðar:
    Árið 2001 er áætlað að framkvæma fyrir um 2.156 m.kr. hjá 31 hafnarsjóði.
    Árið 2002 er áætlað að framkvæma fyrir um 1.455 m.kr. hjá 29 hafnarsjóðum.
    Árið 2003 er áætlað að framkvæma fyrir um 1.587 m.kr. hjá 25 hafnarsjóðum.
    Árið 2004 er áætlað að framkvæma fyrir um 1.454 m.kr. hjá 22 hafnarsjóðum.
    Samtals er kostnaður við ríkisstyrkta hafnargerð áætlaður 6.652 m.kr. á árunum 2001– 2004. Hlutur sveitarfélaganna í þessum framkvæmdum er 2.169 m.kr. en hlutur ríkissjóðs 4.483 m.kr., en um 800 m.kr. af þeirri upphæð er í raun aflað með hinu sérstaka vörugjaldi sem er álag á vörugjöld í höfnum.
    Á árinu 2001 koma til framkvæmda þau verk sem voru á hafnaáætlun árið 2000 (ríkisframlag um 300 m.kr.), en frestað var um eitt ár vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu. Af þeirri ástæðu eru framkvæmdir mestar árið 2001.
    Þann 31. mars 2000 gaf samgönguráðuneytið út reglugerð nr. 247 um slysavarnir í höfnum. Í reglugerðinni er kveðið á um þann öryggisbúnað sem á að vera í höfnum, bryggjustiga, frágang bryggjukanta, lýsingu á hafnarsvæðum, björgunartæki o.fl. Við gerð þessarar áætlunar hafa verkefni sem lúta að slysavörnum fengið forgang þar sem sótt hefur verið um framlög til slíkra hluta. Framlög undir liðnum „Óskipt til slysavarna o.fl.“ eru áætluð tæplega 42 m.kr. á árunum 2001–2004 (8,7 m.kr. 2001, 8,2 m.kr. 2002, 10,5 m.kr. 2003 og 22 m.kr. 2004).
    Nánari sundurliðun kostnaðar við einstakar hafnir er að finna í I. og II. kafla áætlunarinnar.
    Í kafla I a) er yfirlit yfir áætlaða fjárveitingaþörf til hafnarmannvirkja, þ.e. framlag til nýframkvæmda og uppgjörs hvert ár. Í kafla I b) er gerð grein fyrir áætlaðri fjárveitingaþörf til framkvæmda við ferjubryggjur og til lendingarbóta utan hafna.
    Í II. kafla er sundurliðun framkvæmda við hafnarmannvirki í einstökum höfnum ásamt kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélags. Á Raufarhöfn og Þórshöfn er gert ráð fyrir umfangsmiklum dýpkunarframkvæmdum á áætlunartímabilinu og að þessi verkefni verði boðin út í einu lagi. Því er gert ráð fyrir að tímasetning framkvæmda geti breyst með tilliti til hagkvæmni. Unnið er að gerð hafnarreglugerðar fyrir Hafnasamlag Austur-Héraðs og Fella og er stefnt að því að þeirri vinnu verði lokið áður en til framkvæmda kemur.

3. Uppgjör eldri framkvæmda.
    Óuppgerður hluti ríkissjóðs vegna framkvæmda á árinu 2000 eða fyrr, sem kemur til greiðslu af fjárveitingum 2001 eða síðar, er áætlaður 552 m.kr. Ónotuð fjárveiting frá fyrri árum sem nýtist til uppgjörs eða nýframkvæmda er 193,6 m.kr. Þessar tölur byggjast á bráðabirgðauppgjöri Siglingastofnunar frá 31. október 2000. Miðað er við að gera eldri skuldir upp við hafnarsjóðina á áætlunartímabilinu. Lagt er til að 69,9 m.kr. af ónotaðri fjárveitingu renni til að gera upp skuldir, en eftirstöðvarnar, 123,7 m.kr., renni til nýrra framkvæmda. Áætlunin gerir ráð fyrir að heimila framkvæmdir árið 2001 alls 349,8 m.kr. umfram fjárveitingar á Húsavík, í Grindavík, Þorlákshöfn og Sandgerði. Skuld ríkisins vegna framkvæmda á þessum stöðum verður gerð upp síðar á tímabilinu þannig að í árslok 2004 er áætlað að ríkissjóður verði skuldlaus við hafnarsjóðina.

4. Kostnaðarskipting milli ríkis og hafnarsjóða.
    Við gerð þessarar hafnaáætlunar er fylgt sömu meginreglu við ákvörðun á greiðsluþátttöku ríkissjóðs og í fyrri áætlun. Ríkissjóður greiðir þannig 75% í hafnargörðum (öldubrjótum), dýpkunum og siglingarmerkjum (skv. 21. gr. hafnalaga er hámarkið 90%). Ríkið greiðir enn fremur 60% í bryggjum og öðrum innri mannvirkjum hafna sem styrkhæf eru samkvæmt hafnalögum (hámark skv. 21. gr. hafnalaga). Í samræmi við ákvæði í 28. gr. hafnalaga er gert ráð fyrir að Hafnabótasjóður veiti styrk sem nemur 15% af heildarframkvæmdarkostnaði til tekjulágra hafna í fámennum sveitarfélögum. Hlutur þessara minni sveitarfélaga í hafnargörðum og dýpkunum getur því áfram náð því hámarki sem kveðið er á um í hafnalögum.

5. Almenn verkefni ríkisins á sviði hafnamála.
    Við það er miðað að hafnasvið Siglingastofnunar Íslands vinni að þessum verkefnum og fái til þess fjárveitingar af rekstrarliðum stofnunarinnar samkvæmt sundurliðun í töflu hér að neðan (upphæðir í m.kr.):

Verkefni 2001 2002 2003 2004
Yfirumsjón hafnamála
20 20 20 20
Áætlanir
13 13 13 13
Rannsóknir
32 40 40 40
Samtals
65 73 73 73

    Að auki er á hafnaáætlun gert ráð fyrir fjárveitingu árlega til rannsókna sem beint tengjast hafnarmannvirkjum.

Yfirumsjón hafnamála:
    Áætlaður kostnaður 20 m.kr. á ári. Undir þennan lið fellur fjárhagsleg umsjón, vinna að ýmsum laga- og reglugerðarbreytingum er snerta hafnamál, gögn og upplýsingar er varða starfsemi hafna, stjórnvaldsverkefni, erlend samskipti o.fl. er varðar yfirstjórn.

Áætlanir:
    Áætlaður kostnaður 13 m.kr. á ári. Undir þennan lið fellur vinna við greiningu hafnaþarfa, en árlega þarf að endurskoða margvísleg gögn og upplýsingar sem snerta hafnir. Vinna við hagrænar athuganir, samgönguáætlun, hafnaáætlun og sjóvarnaáætlun er einnig undir þessum lið.

Rannsóknir:
    Kostnaður við frumrannsóknir árið 2001 er áætlaður 32 m.kr., en 40 m.kr. á ári 2002– 2004. Verði samþykkt að ráðast í rannsóknir er tengjast nýjum mannvirkjum öðrum en hefðbundnum fiskihöfnum verður að ætla þeim rannsóknum sérstakar fjárveitingar. Með frumrannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð. Helstu verkefnisflokkar eru eftirfarandi:
     Grunnkort af höfnum. Árlegur kostnaður 3,5 m.kr. Áhersla verður lögð á að endurnýja dýptarmælingar, staðsetja hafnir (lengd og beidd) í landskerfinu (ÍSN93) og gera hafnakort með þessum upplýsingum aðgengileg á heimasíðu Siglingastofnunar.
     Sjávarföll og sjávarflóð. Árlegur kostnaður 3 m.kr. Með hliðsjón af fyrirsjáanlegri sjávarborðshækkun þarf að fylgjast vel með þróun sjávarborðs og breytinga við ströndina. Kvörðun sjávarfallamæla verður haldið áfram í samstarfi við Landmælingar Íslands og mælarnir tengdir landshæðakerfinu. Reklíkan fyrir dreifingu olíu og rek hluta verður sett upp sem hluti af upplýsingakerfinu. Unnið verður að viðvörunarkerfi fyrir aftakaveður og sjávarflóð.
     Líkantilraunir og frumáætlanir. Árlegur kostnaður 14–18 m.kr. Gert er ráð fyrir líkantilraunum á eftirtöldum stöðum: Þorlákshöfn, framtíðarþróun hafnarinnar. Neskaupstaður, athugun á nýjum brimvarnargarði. Rifshöfn, endurbætur á innsiglingu. Sífellt er verið að takast á við hærri hönnunaröldu og þróa hönnun bermugarða. Stefnt er að því að setja upp öldurennu fyrir stöðugleikatilraunir fyrir brimvarnargarða. Einnig þarf að endurnýja tækjabúnað við líkantilraunir.
     Öldurannsóknir. Árlegur kostnaður 5 m.kr. Unnið verður að öldureikningum fyrir hafnirnar á Akranesi, Rifshöfn, Bolungavíkurhöfn, hafnir í Eyjafirði, Raufarhöfn, Neskaupstað, Hornafirði, Þorlákshöfn og Kópavogi.
     Efnisflutningar og botnrannsókn. Árlegur kostnaður 1–5 m.kr. Meiri djúprista skipa kallar á viðhaldsdýpkanir í innsiglingum og höfnum. Nauðsynlegt er að fylgjast náið með botnbreytingum, læra af þróuninni og geta sagt fyrir um hvenær þurfi að dýpka. Jafnframt er æskilegt að þróa áfram öldureikningana og bæta við hugbúnaði til að meta botnbreytingar og sjá fyrir hve hratt efni berst í innsiglingarrennur. Þannig þarf að rannsaka innsiglingarrennu utan Hornafjarðaróss og botnbreytingar við Þorlákshöfn auk margra annarra hafna. Samhliða þessum athugunum þarf að gera botnrannsóknir á þessum stöðum. Sífellt verður meiri þörf á að verjast rofi frá skipsskrúfum við bryggjur og þarf að fara fram könnun á umfangi á rofi og gera tillögur til úrbóta.
    Aðrar rannsóknir. Árlegur kostnaður 5,5 m.kr.
     Brimvarnargarðar: Unnið verður áfram að þróun aðferða til að takast á við meiri ölduáraun við hönnun bermugarða. Stefnt er að því að nota stærra grjót en gert hefur verið. Eiginleikar grjóts verða kannaðir með tilliti til stærðar, styrks og veðrunarþols. Haldið verður áfram þátttöku í alþjóðlegri nefnd á vegum PIANC um bermugarða.
     Áhættumat minni fiskiskipa í hættulegum öldum: Rannsóknir Siglingastofnunar Íslands á hreyfistöðugleika skipa í samvinnu við innlendar verkfræðistofur og erlenda aðila hafa leitt til einfaldari útfærslu á stöðugleikagögnum fyrir fiskiskip og þróuð hafa verið tengsl milli hreyfistöðugleika skipa og áhættumats á brotöldum sem fyrir liggur í upplýsingakerfi stofnunarinnar. Til að gera vinnu um borð í fiskiskipum öruggari er grundvallaratriði að draga úr veltingi eins og hægt er. Þetta er gert m.a. með andveltigeymi og í þróun er búnaður til að hámarka nýtingu andveltigeyma með samhæfingu við hleðslu og stöðugleikaforrit og stöðugleikamæli (RT-stöðugleikavakt) sem þegar er í notkun í nokkrum skipum. Meginmarkmiðið er að gera stöðugleikagögn fiskiskipa aðgengileg og notendavæn þannig að upplýsingar um stöðugleika skips liggi ljósar fyrir stjórnanda þess á hverjum tíma.
     Gagnagrunnur fyrir upplýsingakerfi Siglingastofnunar: Gerður hefur verið gagnagrunnur sem heldur utan um raunmælingar og spágögn sem birt eru á heimasíða Siglingastofnunar. Öflugur gagnagrunnur er forsenda varðandi grunnupplýsingar, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og við mannvirkjagerð.