Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1104, 126. löggjafarþing 201. mál: stéttarfélög og vinnudeilur (sektarákvarðanir Félagsdóms).
Lög nr. 20 7. maí 2001.
Þingskjal 1104, 126. löggjafarþing 201. mál: stéttarfélög og vinnudeilur (sektarákvarðanir Félagsdóms).
Lög nr. 20 7. maí 2001.
Lög um breytingu á lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breytingum.
1. gr.
5. gr. laganna breytist þannig:- Í stað orðanna „fleiri en tvö stéttarfélög“ í fyrri málslið 4. mgr. kemur: tvö eða fleiri stéttarfélög.
- Í stað „2. mgr.“ í síðari málslið 4. mgr. kemur: 3. mgr.
2. gr.
Í stað orðanna „Vinnuveitendasambandi Íslands“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 39. gr. laganna og sömu orða í 3. mgr. kemur: Samtökum atvinnulífsins.3. gr.
67. gr. laganna breytist þannig:- Í stað orðanna „Frávísunardómi eða úrskurði“ í 1. tölul. kemur: Frávísunardóm eða úrskurð.
- Í stað orðsins „Dómi“ í 2. tölul. kemur: Dóm.
- 3. tölul. orðast svo: Úrskurð um skyldu til að bera vitni, um eiðvinning og réttarfarssektir skv. 60. og 63. gr.
- Við greinina bætist nýr töluliður sem orðast svo: Ákvörðun um að gera aðila að greiða sektir skv. 65. gr.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 24. apríl 2001.