Ferill 644. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1182 — 644. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um samþykkt ákvörðunar ráðherraráðs Evrópusambandsins um að koma á, í samræmi við 34. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, samningi um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Högna S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að samþykkja ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um að koma á, í samræmi við 34. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, samningi um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja sambandsins að því leyti sem ákvæði hans byggjast á Schengen-samningnum.
Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur nefndin kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum sem hefur verið til meðferðar í allsherjarnefnd. Þær breytingar lúta annars vegar að gagnkvæmri réttaraðstoð við sendingu og afhendingu málsskjala í sakamálum og hins vegar að réttarstöðu embættismanna frá öðrum ríkjum með tilliti til refsiverðra verknaða sem beinast að þeim eða þeir fremja sjálfir.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Þórunn Sveinbjarnardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 4. maí 2001.
Tómas Ingi Olrich,
form., frsm.
Magnús Stefánsson.
Lára Margrét Ragnarsdóttir.
Árni R. Árnason.
Jónína Bjartmarz.
Einar K. Guðfinnsson.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Steingrímur J. Sigfússon,
með fyrirvara.