Ferill 638. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1188  —  638. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2000, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Hauk Jóhannesson og Högna S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti og Hörð Helgason frá Persónuvernd.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2000, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES- samninginn, og að fella inn í samninginn ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar sem byggðar eru á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins um fullnægjandi vernd persónuupplýsinga í Sviss og Ungverjalandi og tilskipun sem fjallar um fullnægjandi vernd samkvæmt þeim meginreglum um örugga höfn fyrir friðhelgi einkalífsins og þeim algengu spurningum og svörum um það efni sem viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur gefið út.
    Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi. Nefndin hefur kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga sem hefur verið til meðferðar í allsherjarnefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. maí 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Jónína Bjartmarz.


Einar K. Guðfinnsson.



Jóhann Ársælsson.


Steingrímur J. Sigfússon.