Ferill 655. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1365 — 655. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um fullgildingu V. viðauka við samning um verndun Norðaustur-Atlantshafsins, um verndun og varðveislu vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni hafsvæðisins.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar og Heiðar Ásberg Atlason frá utanríkisráðuneyti, Magnús Jóhannesson og Sigríði Auði Arnardóttur frá umhverfisráðuneyti og Davíð Egilson frá Hollustuvernd ríkisins.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á V. viðauka við samning um verndun Norðaustur-Atlantshafsins, um verndun og varðveislu vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni hafsvæðisins (OSPAR-samninginn) og 3. viðbæti við samninginn.
OSPAR-samningurinn hefur það að markmiði að vernda umhverfi Norðaustur-Atlantshafsins. Um er að ræða rammasamning sem skiptist upphaflega í meginhluta, fjóra viðauka og tvo viðbæta. Meginhlutinn hefur að geyma almenn ákvæði en í viðaukunum eru settar reglur um mengun frá landstöðvum, mengun af völdum varps eða brennslu, mengun frá uppsprettum á hafi og mat á ástandi hafsins. Viðbætarnir eru tæknilegs eðlis.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Einar K. Guðfinnsson, Jónína Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 16. maí 2001.
Tómas Ingi Olrich,
form., frsm.
Magnús Stefánsson.
Lára Margrét Ragnarsdóttir.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Árni R. Árnason.
Steingrímur J. Sigfússon.