Ferill 744. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1402  —  744. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um áhrif lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að gangast fyrir sérstakri úttekt á áhrifum lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu. Í úttekt þessari verði m.a. lagt mat á hvort lækkun endurgreiðslunnar hafi aukið tekjur ríkissjóðs eins og vonast var til, hvort og/eða hversu mikið svört atvinnustarfsemi á þessu sviði hafi aukist og hvort ástæða sé til þess að hækka endurgreiðsluhlutfallið á nýjan leik og bæta aðgang að endurgreiðslunum.
    Stefnt skal að því að niðurstöður verði lagðar fyrir Alþingi á næsta þingi.

Greinargerð.


    Þingsályktunartillaga þessi er flutt í tengslum við meðferð efnahags- og viðskiptanefndar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, 101. mál, en flutningsmenn þess eru Sighvatur Björgvinsson, Margrét Frímannsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Kristján L. Möller og Gísli S. Einarsson. Um efnisatriði tillögunnar vísast til frumvarpsins og greinargerðar með því.