Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 21:23:21 (5965)

2002-03-11 21:23:21# 127. lþ. 94.17 fundur 545. mál: #A stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins# frv., Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[21:23]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Forseti biður hv. þingmenn að virða tímamörkin. Ef menn eru að kvarta undan kvöldfundum þá er rétt að eyða ekki öllu kvöldinu í umræður um störf forseta. (Gripið fram í: Er einhver að kvarta undan kvöldfundum?) (KolH: Það er enginn að kvarta undan kvöldfundum.) (Gripið fram í: Það er verið að kvarta undan mætingunni.) Ef forseti mætti ljúka máli sínu. Vegna orða hv. þm. þá er ekki rétt að hér séu ráðherrabekkir tómir. Hæstv. iðnrh. situr í sæti sínu og hefur forræði þessa máls eins og áður hefur verið vakin athygli á.