Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 21:38:28 (5973)

2002-03-11 21:38:28# 127. lþ. 94.17 fundur 545. mál: #A stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins# frv., Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[21:38]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Forseti mótmælir því að hann hafi gert lítið úr þeirri umræðu sem hér fer fram. Það er einfaldlega ekki rétt.

Varðandi röð dagskrármála hefur þessi dagskrá legið fyrir síðan í morgun, líklega lengur. Henni mun ekki hafa verið mótmælt á fundi þingflokksformanna í morgun. Engin athugasemd við að dagskráin væri með þessum hætti hefur borist fyrr en núna.