[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.
Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Hv. þm. spyr um félagslegar aðgerðir. Ég þekki það auðvitað best úr mínu héraði að nánast hver einasta stjórn yfir afréttum og sveitarstjórn sem afréttur heyrir undir eru í stórkostlegum félagslegum aðgerðum til að bæta gróður og taka á saman. Það þekki ég vel af Suðurlandi þannig að það er auðvitað mjög algeng aðferð. Bændurnir hafa áhuga á afréttunum. Ég minni sérstaklega á t.d. Biskupstungnaafrétti þar sem menn hafa af miklum myndarskap staðið að félagslegum aðgerðum, og þannig er það reyndar á öllum sunnlensku afréttunum í samráði við Landgræðsluna þannig að á þeim vettvangi hefur verið unnið gríðarlega gott starf.
Hv. þm. heldur sig við ítöluna þó að glöggt komi fram í þessu máli og af hálfu Landgræðslunnar að hún hefur ekki reynst sem skyldi og menn eru að fara inn í annað og betra kerfi. Þó að gripið hafi verið til ítölunnar í ein 10 skipti hefur það ekki gefið góða raun, segir Landgræðslan mér, leggur til breytingu og lítur björtum augum til þeirra samninga sem hafa verið gerðir, til 10 ára í rauninni, þar sem menn búa við úrbótaáætlanir og geta tekið á saman í málefnunum eftir þeirri leið. Hér er verið að leggja til hliðar gamla leið sem ekki gekk upp, taka upp nýtt. Ég trúi ekki að það fari í taugarnar á hv. þm. að ný markvissari leið sé reynd sem ég heyrði að hv. þm. Sigríður Jóhannesdóttir studdi áðan, og ég bind vonir við að skili árangri, hæstv. forseti.