Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Þuríður Bachman mælti hér fyrir þáltill. sinni og fleiri vinstri grænna um hvernig styrkja ætti byggð í landinu. Hv. þm. sagði m.a. að greina ætti þarfir samfélagsins á hverju svæði fyrir sig, þ.e. hvaða þarfir eru á hverju svæði. Það á einnig að styrkja íbúaþróun samkvæmt þessari þáltill.
Nú er í undirbúningi gríðarlegt verkefni sem nánast allir Austfirðingar styðja og bíða eftir að komist til framkvæmda. Þarfir íbúanna eru virkilega ljósar í þessu máli. Þarfir samfélagsins eru líka virkilega ljósar en svo koma vinstri grænir og segja að þeir vilji fara að greina þarfir samfélagsins. Samfélagið hefur þegar tekið upp á sína arma stórkostlegt verkefni sem beðið er eftir að komist í framkvæmd en vinstri grænir berjast eins og þeir mögulega geta til að koma í veg fyrir það.
Mér finnst, herra forseti, að það sé búið að greina þarfir samfélagsins af hálfu vinstri grænna, þeir vilja helst ekkert gera nema eitthvað allt annað en samfélagið vill. Því miður.
Ég spyr hv. þm. að því hvað hún hafi þá hugsað sér að gera. Hvað hefur hún í hendi til að geta sagt að þessi þáltill. bregðist við þörfum samfélagsins?