[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.
Örlygur Hnefill Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Hér lögð fram mjög athyglisverð þáltill. sem mér finnst horfa mjög til framtíðar. Tímarnir breytast og tækni gærdagsins getur orðið úrelt á morgun. Því er mjög brýnt að þingmenn séu vakandi yfir þeim kostum og þeim breytingum sem eru að verða á samfélagi okkar. Ég fagna því þessari tillögu sem hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson hefur lagt hér fram.
Samfylkingin er jákvæður og framfarasinnaður flokkur. Því er við hæfi að þingmenn hennar flytji tillögu eins og hér liggur fyrir. Það tel ég fagnaðarefni, herra forseti.