[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.
Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég skulda hv. þm. afsökunarbeiðni. Hv. þm. varpaði til mín tilteknum spurningum sem ég í hita leiksins, af því ég hef ástríðufulla sannfæringu um gæði þessa máls, gleymdi að svara.
Hv. þm. spurði mig hvernig ég sæi fyrir mér, ef komið væri á einu kjördæmi á Íslandi, að menn veldu á lista? Mér heyrðist hv. þm. tala um að það kynni þá að fara þannig að (KPál: Að þú réðir öllu.) ákveðnir valdamiklir formenn réðu öllu.
Bíðum nú við, herra forseti, er hv. þm. ekki að tala við vitlausan flokksformann? Er hv. þm. ekki að koma af landsfundi flokks síns sem ekki var beinlínis hægt að segja að stafað hafi mikilli lýðræðisgleði frá? Ég segi það nú, herra forseti, vegna þess að á þeim fundi var samþykkt tillaga sem gengur nákvæmlega gegn þeirri hugmynd sem hér er viðruð, sem hv. þm. Kristján Pálsson reyndar lofar.
Ég er þeirrar skoðunar að ef landið væri eitt kjördæmi, þá væri vel mögulegt að viðhafa prófkjör, ekki síst á netinu. Sá möguleiki er líka uppi að fram væri settur tiltekinn fjöldi frambjóðenda og að þeir sem kysu tiltekinn flokk fengju að raða þeim upp sjálfir í kosningunni. Ég held að það væri nokkuð djarft en þar með værum við búin að mola það sem hv. þm. var að tala gegn, kannski af biturri reynslu, sem er einræði flokksformanna.