Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég sagði að það þyrfti e.t.v. nokkra miðstýringu á kynningu á landinu, að líklega væri slík kynning best komin í höndum stofnana á borð við Ferðamálaráð. Það má vel hugsa sér að um það sæju einhvers konar landshlutasamtök á sviði atvinnuþróunar sem fengju fjármagn til að auglýsa landshluta sína. Ég skal ekki um það segja. En ég held samt sem áður að hv. þm. hafi átt við að jafnvel þó hann væri þakklátur fyrir það sem Flugleiðir hafa gert, og það er ég líka, þá sé ástæðan fyrir því að útlendingar sem hingað koma til heimsókna vita lítið af náttúru landsins og fegurð þess utan suðvesturhornsins, liggi í því að það eru fyrst og fremst Flugleiðir sem auglýsa suðvesturhornið.
Eftir að hafa sumrum saman ferðast um Ísland er ég alltaf meira og meira hissa á því sem það hefur upp á margt að bjóða. En á hinum síðustu og verstu tímum er ég ákaflega hissa yfir því hve fáir koma og skoða þessar náttúrugersemar okkar. Ég var t.d. þeirrar ánægju aðnjótandi fara á Langanes í fyrsta skipti um nokkurra áratuga skeið í sumar. Ég hitti varla nokkurn mann þar fyrir en var undrandi yfir þeirri sérstöku og einstöku náttúruperlu sem Íslendingar eiga þar. Hvernig stendur á því að það veit enginn af henni og enginn fer þangað? Það er sennilega af því að enginn hefur hag af því að draga fram sérstöðu þessa svæðis. Hins vegar er það með þeim hætti sem við þurfum að vinna, að draga fram sérstöðu einstakra landshluta til að ná betri nýtingu á þeirri fjárfestingu sem liggur þar.
Ég held að hv. þm. og ég séum sammála um það. Okkur kann að greina pínulítið á um leiðir að því marki en við erum þó alla vega sammála um eina ákaflega notadrjúga leið til að setja meira fjármagn til þess að kynna landið. Ég er svo sammála hv. þm. um að nú er sérstakt lag á að kynna Ísland erlendis.