Girðingarlög

Fimmtudaginn 01. nóvember 2001, kl. 17:17:38 (1053)

2001-11-01 17:17:38# 127. lþ. 19.5 fundur 180. mál: #A girðingarlög# (heildarlög) frv., SJóh (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 127. lþ.

[17:17]

Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta hefur allt verið afskaplega gleðilegt og jákvætt. Þó hefur komið hér fram ákveðin gagnrýni á að búnaðarsambönd séu ávallt rétti úrskurðaraðilinn í deilumálum sem upp kunna að koma í þessu sambandi. Ég vil nefna hérna t.d. að það getur komið upp óþægileg staða vegna nálægðar viðkomandi ráðunauta við aðila. Það getur verið óþægilegt að búnaðarsambandið eigi alltaf að tilgreina fagaðila til að skera úr um málið. Ég held að þetta geti kannski átt við í sumum tilfellum. En ég sný ekki til baka með það fyrr en ég hef verið sannfærð um annað að það er óheppilegt að það standi í lögunum að þessir aðilar skuli ávallt, hverjir sem í hlut eiga eða eru aðilar að deilunni, eiga að skera úr um ágreining í slíkum deilumálum.