Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Varðandi ræðu hv. 5. þm. Norðurl. v. um vinnu í fjárln., þá gæti auðvitað ýmislegt þar betur farið. Hins vegar er alveg ljóst að mikilvægt er að vinna eftir vinnuáætlunum eins og við höfum verið að gera. Við kappkostum við að ljúka fjárlagaumræðunni á tilsettum (Gripið fram í.) tíma, þ.e. 7. desember nk. Ég er alveg viss um að ef samstarfsvilji er fyrir hendi þá getum við það. Við höfum þær upplýsingar sem við þurfum. Við getum auðvitað alltaf unnið hraðar og betur, en ég er alveg sannfærður um að okkur tekst þetta með góðum vilja. (Gripið fram í: Það er ekki unnið samkvæmt áætlun.)