Fjárlög 2002

Laugardaginn 08. desember 2001, kl. 16:03:09 (2867)

2001-12-08 16:03:09# 127. lþ. 47.3 fundur 1. mál: #A fjárlög 2002# frv. 158/2001, KolH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 127. lþ.

[16:03]

Kolbrún Halldórsdóttir:

Herra forseti. Hér kemur til atkvæða skerðingartillaga frá meiri hluta fjárln. sem gerir ráð fyrir því að skert verði framlag til endurbyggingar Þjóðminjasafnsins um 15 millj. kr. og einnig að skert verði framlag til Þjóðminjasafnsins, húsasafns, þ.e. verndun gamalla húsa í umsjá Þjóðminjasafnsins.

Í ljósi þess að húsasafnið hefur þurft að berjast í bökkum og það hefur verið mjög erfitt að geta haldið úti bráðnauðsynlegum verkefnum, þ.e. að viðhalda okkar verðmætustu húsum úti um allt land, þá geta hv. þm. Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs ekki greitt svona skerðingu atkvæði. Við segjum nei.