Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 202  —  191. mál.




Frumvarp til laga




um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Karl V. Matthíasson, Árni Steinar Jóhannsson.



1. gr.


    3. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Á sama fiskveiðiári er þó aðeins heimilt að veita fiskiskipi eina gerð leyfis til veiða í atvinnuskyni, þ.e. veiðileyfi með almennu aflamarki, veiðileyfi krókabáta með þorskaflahámarki (krókaleyfi), veiðileyfi krókabáta á sóknardögum eða veiðileyfi krókabáta á sóknardögum með þorskaflahámarki.

2. gr.


    Í stað 6. gr. laganna koma þrjár nýjar greinar:

       a.      (6. gr.)
    Veiðileyfi sem úthlutað er samkvæmt þessari grein skulu nefnd krókaleyfi og bátar sem þau hafa krókabátar með þorskaflahámarki.
    Krókabátar sem veiðar stunduðu eftir ákvæðum laga um þorskaflahámark krókaveiðibáta, samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 1/1999, á fiskveiðiárinu 2000–2001 skulu eftir gildistöku laga þessara hafa sömu hlutdeild í þorskafla og þeir fengu í úthlutun 1. september 2001. Hafi útgerðir þeirra flutt til sín eða frá sér varanlegar heimildir í þorski eftir 1. september 2001 og þar til þessi lög taka gildi breytist hlutdeild þeirra í samræmi við það. Aðrar fisktegundir eru ekki háðar magntakmörkunum í veiðum krókabáta á þorskaflahámarki. Hámarksfjöldi bala í róðri á þorskaflahámarksbátum á hverjum sólarhring er 24 balar með 500 króka hver.
    Krókabátum er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum eða einungis með handfærum. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf, svo sem plógum og gildrum, svo og til hrognkelsaveiða í net.
    Heildarþorskaflaviðmiðun krókabáta er 13,75% af ákvörðuðum heildarþorskafla hvers fiskveiðiárs. Þar af er samanlagt þorskaflahámark þeirra báta sem þann kost hafa valið 12,64%. Heildarþorskaflaviðmiðun þeirra báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum og 30 lesta hámarki í þorskafla á hvern bát og nota línu og handfæri er 0,18% auk aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 1/1999. Heildarþorskaflaviðmiðun þeirra báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum og nota handfæri eingöngu er 0,93%, auk aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 1/1999.
    Heimilt er að framselja varanlega þorskaflahámark krókabáts til annars krókabáts eða báta sem stunda veiðar með þorskaflahámarki. Innan fiskveiðiárs er heimilt að flytja allt að 30% af úthlutuðu þorskaflahámarki krókabáts til annars krókabáts eða báta sem stunda veiðar með þorskaflahámarki. Heimilt er að flytja allt að 20% af þorskaflahámarki frá einu fiskveiðiári yfir til þess næsta á eftir. Enn fremur er heimilt að flytja til krókabáts á þorskaflahámarki aflamark af þorski skv. 7. gr. Um þann flutning gilda almennar reglur um flutning aflamarks. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning þorskaflahámarks milli báta og öðlast hann ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest flutninginn. Heimilt er að veita báti, sem stundað hefur veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga síðastliðin tvö fiskveiðiár, leyfi til að stunda veiðar með þorskaflahámarki þess í stað, en reiknað þorskaflahámark bátsins verður þá áfram hluti sameiginlegs hámarksþorskafla báta sem stunda veiðar samkvæmt dagatakmörkunum.     Ráðherra getur þó heimilað að veiðar í sérhæfð veiðarfæri samkvæmt síðari málslið 3. mgr. þessarar greinar, sem og veiðar með sérhæfðri línu til veiða á háffiskum, séu utan sóknardaga.
    Verði bátur með krókaleyfi dæmdur ónýtur vegna tjóns er heimilt að veita sambærilegum báti sams konar krókaleyfi.
    Heimilt er að flytja veiðileyfi frá krókabáti sem leyfi hefur til að veiða samkvæmt þessu ákvæði til annars jafnstórs krókabáts miðað við rúmtölu. Óheimilt er að flytja veiðileyfi til krókabáts sem er stærri en sá krókabátur sem veiðileyfi lætur nema jafnframt sé flutt veiðileyfi af öðrum krókabáti sem er þrefalt stærri að rúmtölu en sem stækkuninni nemur. Slíkur bátur má þó ekki verða stærri en 6 brúttótonn. Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga.
    Óheimilt er að stækka krókabát nema flutt sé veiðileyfi af öðrum báti sem er þrefalt stærri að rúmtölu en sem stækkuninni nemur. Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga. Slíkum báti má þó aldrei breyta svo að hann verði stærri en 6 brúttótonn.
    Ráðherra getur ákveðið að afli teljist ekki til þorskaflahámarks og veiðidagar ekki til sóknardaga á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta.
    Áður en leyfðum heildarafla til aflamarks er skipt á grundvelli aflahlutdeildar skal draga eftirtalinn afla frá: Þorskur, hlutdeild krókabáta í heildarþorskafla 13,75%, ýsa 3.000 tonn, ufsi 1.000 tonn og steinbítur 3.000 tonn.
    
       b.      (6. gr. a.)
    Veiðileyfi til krókabáta sem úthlutað er samkvæmt þessari grein skulu nefnd veiðileyfi krókabáta á sóknardögum.
    Bátar sem fengið hafa leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum skv. 13. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögum nr. 1/1999 skulu á fiskveiðiárinu 2001–2002 og framvegis stunda veiðar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
    Þessum bátum er einungis heimilt að stunda veiðar á tímabilinu 1. apríl til 31. október ár hvert. Þeim er einungis heimilt að stunda veiðar með handfærum. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum og háffiskum með sérhæfðum veiðarfærum og til hrognkelsaveiða í net.
     Sameiginlegur hámarksþorskafli þeirra báta sem stunda veiðar samkvæmt þessari grein skal á hverju fiskveiðiári vera sama hlutfall af 13,75% af heildarþorskafla hvers fiskveiðiárs og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í 21.000 lestum miðað við reiknað þorskaflahámark skv. 2. gr. laga nr. 83/1995, auk aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 1/1999.
    Sóknardagur telst vera allt að 24 klst. og mælist í klukkustundum með sjálfvirkri tilkynningu frá upphafi veiðiferðar. Sóknardegi eða hluta úr sóknardegi telst lokið þegar bátur landar afla. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga og eftirlit með þeim. Utan sóknardaga eru allar veiðar bannaðar. Ráðherra getur þó heimilað að veiðar samkvæmt lokamálslið 3. mgr. þessarar greinar séu utan sóknardaga. Heimilt er krókabátum á sóknardögum að stunda veiðar í 23 sóknardaga að lágmarki á hverju fiskveiðiári án takmörkunar á heildarafla.
    Heimilt er að flytja sóknardaga innan hvers fiskveiðiárs eða varanlega milli báta sem hafa leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum. Sé sá bátur sem sóknardagar eru fluttir til stærri, í brúttótonnum talið, en sá sem sóknardagar eru fluttir frá skal skerða flutta sóknardaga í hlutfalli við stærðarmun bátanna og sleppa broti. Þá skal með sama hætti fjölga sóknardögum sem fluttir eru til minni báts. Á sama hátt skal skerða sóknardagafjölda báts sem er stækkaður. Óheimilt er að flytja hlutfallslega fleiri sóknardaga frá báti, umfram þá daga sem fluttir hafa verið til báts, en nemur hlutfallslegri nýtingu bátsins á úthlutuðum sóknardögum á fiskveiðiárunum 1999/2000 og 2000/2001. Í því sambandi skal miðað við meðaltal af sóknardaganýtingu fiskveiðiáranna. Séu sóknardagar fluttir frá báti skulu þeir sóknardagar sem báturinn hefur eftir flutninginn vera mismunur þess fjölda sóknardaga sem heimilt er að flytja frá bátnum og þeirra sóknardaga sem fluttir hafa verið, að teknu tilliti til sóknardaga sem fluttir hafa verið til bátsins. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning sóknardaga milli báta og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann.
    Óheimilt er að veita bátum 6 brúttótonn eða stærri, sem ekki hafa haft leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum, leyfi til að stunda veiðar samkvæmt þessari grein. Þá er óheimilt að stækka bát sem hefur leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum þannig að hann verði 6 brúttótonn eða stærri.
    Ákvæði 7.–9. mgr. 6. gr. laganna eiga jafnframt við um ákvæði þessarar greinar.

       c.      (6. gr. b.)     
    Veiðileyfi krókabáta sem úthlutað er samkvæmt þessari grein skulu nefnd veiðileyfi krókabáta á sóknardögum með þorskaflahámarki.
    Fjöldi sóknardaga þeirra báta sem fengið hafa leyfi til að stunda veiðar með dagatakmörkunum skv. 6. og 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögum nr. 1/1999 og nota línu og handfæri skal vera 32 á hverju fiskveiðiári. Ef bátur rær með línu skal margfalda fjölda nýttra daga með tölunni 1,9 á tímabilinu frá 1. maí til 1. september en með tölunni 1,35 á öðrum tíma. Þorskafli hvers báts má þó eigi vera meiri en 30 lestir á hverju fiskveiðiári miðað við óslægðan fisk.
    Sé einn maður í áhöfn krókabáts er óheimilt að róa með og eiga í sjó fleiri en 12 bala alls af línu fyrir hvern sóknardag en 24 bala séu tveir eða fleiri í áhöfn. Miðað er við að 500 krókar séu á línu í hverjum bala.
    Fjöldi sóknardaga þeirra báta sem veiðar stunda með dagatakmörkunum skv. 8. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögum nr. 1/1999 og nota handfæri eingöngu skal vera 40 á hverju fiskveiðiári. Þó skal þorskafli hvers báts eigi vera meiri en 30 lestir á hverju fiskveiðiári miðað við óslægðan fisk.
    Ákvæði 7.–9. mgr. 6. gr. laganna eiga jafnframt við um ákvæði þessarar greinar.



3. gr.


    Í stað orðsins „krókaaflamarks“ í 2. mgr. 6. gr. a laganna sem verður 6. gr. c, kemur: þorskaflahámarks.

4. gr.


    1. tölul. 3. mgr. 7. gr. laganna orðast svo: Áætlaðan afla krókabáta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum eða þorskaflahámarki.
    
    

5. gr.


    2. málsl. 6. mgr. 11. gr. laganna fellur brott.

6. gr.


    Lokamálsgrein 12. gr. laganna fellur brott.

7. gr.


    Ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögunum fellur brott.

8. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er þess nú freistað að skipa málum með þeim hætti til framtíðar að krókaveiðibátar undir 6 brt. að stærð fái að búa við það veiðikerfi þorskaflahámarks og sóknartakmarkana sem sjómenn hafa sætt sig við undanfarin ár og geta sætt sig við næstu árin.
    Ætlað er að koma á þeirri skipan mála til framtíðar að lögfesta veiðikerfi krókabáta sem næst óbreytt eins og framkvæmd þess var fyrir 1. september sl. Frumvarpið er byggt á þeirri framkvæmd sem gilt hefur um veiðar krókabáta undanfarin þrjú ár og þar af leiðandi fellur krókaaflahlutdeild eða krókaaflamark niður samkvæmt frumvarpinu. Með því verða smábátasjómenn ekki kvótasettir í öðru en þorskaflahámarkskerfi. Nokkrar breytingar eru þó lagðar til og eru þær helstu eftirfarandi: Sett er inn sú nýbreytni til sóknarminnkunar að veiðar þorskaflahámarksbáta eru takmarkaðar við að róið sé með mest 24 bala með 500 krókum hver á hverjum sólarhring. Einnig er lagt til að lágmarksfjöldi sóknardaga verði 23 dagar án takmörkunar á heildarafla. Þá er lagt til að setja inn tímamælingu á sjósókn sóknardagabáta sem veiða á handfæri í 23 daga á hverju fiskveiðiári. Við þessa breytingu verður fjarlægð sú spenna sem fylgt hefur 24 klst. samfelldri sjósókn þessara báta og tekið á því vandamáli að það skipti öllu máli að ná í höfn innan 24 klst. Ef heimsigling dregst mælast þær klukkustundir sem eðlileg viðbót, t.d. 26 eða 28 klst. alls sem fóru í veiðiferðina. Það þýðir að sjóróðrar þessara báta verða ekki endilega 23 eins og sóknardagarnir heldur t.d. 18 eða 20 sjóróðrar.
    Miklar deilur hafa staðið um veiðar krókabáta hér á landi í nokkur ár enda er þeim settur mun þrengri rammi hér á landi en víða annars staðar. Ófriður hefur ríkt um veiðikerfi smábátanna en undanfarin ár hafa stjórnvöld gengið erinda stórútgerðarmanna gegn hagsmunum smábátasjómanna og fólks í hinum dreifðu sjávarbyggðum landsins.
    Eitt helsta viðfangsefni fiskveiðistjórnar er að setja reglur sem takmarkað geta stærð fiskiskipaflotans. Flest ef ekki öll ríki þar sem fiskveiðar eru stundaðar hafa reglur sem takmarka stærð fiskiskipaflotans og skipta flotanum í aðgreinda útgerðarflokka án þess að það hafi verið talið brot á stjórnarskrá þeirra. Enda er takmörkun á stærð fiskiskipa ein helsta aðferðin við að takmarka fiskveiðar, auk reglna um veiðisvæði og gerð og stærð veiðarfæris sem fiskveiðiríkin heimila að beita innan lögsögu sinnar.
    Í grannríkjum okkar Færeyjum og Noregi er fiskveiðiflotanum skipt eftir stærð skipa í útgerðarflokka og einnig eftir því hvaða veiðiaðferð er notuð við fiskveiðarnar, þ.e. togveiðar, netaveiðar, línuveiðar eða handfæraveiðar o.s.frv.
    Yfirleitt er það svo að veiðar með kyrrstæðum veiðarfærum, sem notuð eru af hinum minni skipum fiskveiðiflotans, njóta mest frjálsræðis í veiðum. Þetta á einkum við á grunnslóð þar sem veiðum smærri skipa er oft markaður forgangur, t.d. innan 6–12 sjómílna frá strönd.
    Í íslenskum lögum hafa veiðar með kyrrstæðum veiðarfærum einnig haft forgang en stærð fiskiskipa sem veiða næst ströndinni er ekki takmörkuð, nema þegar um togveiðar er að ræða en þeim er skipað með lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.
    Líkt og í lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, er tilgangur laga nr. 79/1997 sagður í 1. gr. vera að ,,stuðla að viðgangi og hagkvæmri nýtingu nytjastofna innan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu“. Stærðarflokkaskiptingin í þessum lögum er miðuð við lengd skipa og aflvísa þeirra.
    Færeyingar hafa tekið mjög harða afstöðu til veiðarfærastýringar við fiskveiðar í lögsögu sinni og bönnuðu veiðar á þorski, ýsu og ufsa í net þegar árið 1975, auk svo til allra veiða með dragnót.
    Hérlendis hefur dragnótin hins vegar verið notuð mjög víða, allt upp að fjöruborði af öllum stærðum skipa, en frá 1997 eru aðeins skipum undir 42 m heimilaðar slíkar veiðar. Dragnótaveiðar hafa hin síðari ár breyst mjög, þ.e. stærð og gerð veiðarfæra, sem vafalítið mun leiða til þess að yfirferð um botninn verður líkari því sem fiskitrollið gefur möguleika á. Eins og áður sagði er veiðum upp við ströndina og á grunnslóð ekki stýrt hér eftir stærð skipa, þótt erlendis hafi smábátar víða forgang á veiðisvæðum með línu og handfærum eftir stærðarflokkum.
    Flutningsmenn telja óeðlilegt að kvótasetja smábátaflotann, enda hníga ekki rök til að það þjóni hagsmunum þjóðarinnar að hefta veiðar hans. Miklu heldur ykjust verðmæti af auðlindinni ef smábáta- og strandveiðiflotinn fengi að veiða meira af ýsu, ufsa og steinbít. Sumar þessar fisktegundir ekki verið fullnýttar af stórútgerðinni á undanförnum árum, sbr. tegundatilfærslu liðinna ára. Þar hefur smábátaflotinn bjargað á land milljörðum króna í afla- og útflutningsverðmætum sem ella hefði ekki verið aflað. Það sanna tölur um veiðar á steinbít, ýsu og fleiri tegundum.
    Ljóst er orðið að þann tíma sem nú er liðinn af þessu fiskveiðiári, fram í miðjan október, hefur róðrarlag smábátanna verið með allt öðrum hætti en undanfarin ár. Þetta róðrarlag, sem stjórnvöld hafa komið á með byggðafjandsamlegum aðgerðum sínum, hefur orðið til þess að atvinna við veiðar smábátanna hefur snarminnkað í mörgum sjávarbyggðum landsins. Þar til viðbótar vantar nýjan fisk af dagróðrarbátum til vinnslu fyrir ferskfisksmarkaði innan lands og utan. Leiguverð á ýsu og þorski fer enn hækkandi og var þó talið allt of hátt fyrir 1. september sl. Stjórnvöld hafa með verkum sínum unnið gegn markmiðum laga um að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu. Í stað þess að gera allt til varnar því að fólk fari af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins stefna aðgerðirnar gegn smábátaútgerðinni og fólkinu í sjávarbyggðum landsins. Nú er mál að snúið verði af þeirri óheillabraut.