Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 408 — 170. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur um reglugerðir.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra sett allar reglugerðir sem lög kveða á um að hann skuli setja? Ef svo er ekki, hvaða reglugerðir eru ósettar og hvað líður setningu þeirra?
Á vegum umhverfisráðuneytisins hefur á undanförnum árum staðið yfir heildarendurskoðun helstu laga sem undir ráðuneytið falla. Má þar nefna skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, lög nr. 44/1999, um náttúruvernd, lög um brunavarnir, nr. 75/2000, og lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Það er ljóst að við framkvæmd þessara laga þarf að styðjast við reglugerðir og getur vinna við þær tekið nokkurn tíma enda oft gert ráð fyrir því að hlutaðeigandi stofnanir eða tilteknir aðilar komi að málum ýmist í tengslum við tillögugerð eða umsagnir.
Hér á eftir er gerð grein fyrir reglugerðum sem ber að setja samkvæmt tilteknum lögum og ekki hafa enn verið settar:
1. Lög nr. 15/1994, um dýravernd.
Samkvæmt 6. mgr. 16. gr. laganna setur ráðherra í samráði við tilraunadýranefnd reglugerð þar sem kveðið er á um meðferð tilraunadýra og eftirlit með tilraunum. Tilraunadýranefnd, en til hennar þarf að sækja um leyfi fyrir tilraunum fylgi þeim álag eða þjáning fyrir dýrið, skilaði tillögum til ráðuneytisins sl. vor og sendi ráðuneytið tillögurnar til umsagnar fjölmargra aðila. Reglugerðin verður sett á næstunni.
2. Lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995.
Samkvæmt 5. gr. laganna setur umhverfisráðherra, að fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og umsögnum viðkomandi sveitarstjórna um þær, reglugerð þar sem kveðið skal á um verndaraðgerðir á grundvelli laganna, um varnir gegn hvers konar mengun og aðgang ferðamanna að tilteknum stöðum á svæðinu sem viðkvæmir eru vegna náttúrufars. Breiðafjarðarnefnd, sem starfar samkvæmt lögunum og nýlega hefur lokið við gerð verndaráætlunar fyrir Breiðafjörð, vinnur að þessu máli og mun væntanlega senda ráðuneytinu tillögur sínar innan tíðar.
3. Skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997, með síðari breytingum.
Samkvæmt 27. gr. laganna skal ráðherra kveða nánar á um útgáfu framkvæmdaleyfa í reglugerð. Ákvæðin um framkvæmdaleyfi sem tóku gildi 1. janúar 1998 eru nýmæli. Að mati ráðuneytisins er nauðsynlegt að reynsla fáist af framkvæmdinni áður en reglugerð verður sett en að hluta til er tekið á útgáfu framkvæmdaleyfa í 3. og 4. tölul. 9. gr. skipulagsreglugerðar nr. 400/1998. Nú hefur hins vegar verið tekin ákvörðun um endurskoðun laganna þar sem sérstaklega verður tekið á framkvæmdaleyfum með hliðsjón af fenginni reynslu. Samkvæmt 29. gr. laganna skal ráðherra í reglugerð, að fengnum tillögum Skipulagsstofnunar og að höfðu samráði við dómsmálaráðuneytið, Fasteignamat ríkisins, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofu Íslands, kveða nánar á um skráningu lóða og fasteigna og gerð og frágang landeignarskrár. Málið er í vinnslu á vegum sérstakrar nefndar. Í 50. gr. laganna segir að ráðherra setji nánari reglur um hæfnisskilyrði prófhönnuða, störf þeirra og starfshætti. Nefnd á vegum ráðuneytisins skilaði tillögum fyrr á árinu og voru þær sendar til umsagnar valinna aðila. Málið verður væntanlega afgreitt á næstunni.
4. Lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.
Í 20. gr. laganna segir að ráðherra setji í reglugerð, að fengnum tillögum forstjóra, nánari ákvæði um skipulag Hollustuverndar ríkisins. Tillaga hefur ekki borist.
5. Lög um landmælingar og kortagerð, nr. 95/1997, með síðari breytingum.
Í 5. gr. laganna, eins og þeim var breytt með lögum nr. 171/2000, er kveðið á um það að ráðherra setji reglugerð um vottun landmælingamanna sem sjá um að mæla eignamörk landa og lóða að fengnum tillögum Landmælinga Íslands og að höfðu samráði við Fasteignamat ríkisins. Unnið er að gerð tillagna hjá Landmælingum Íslands.
6. Lög nr. 44/1999, um náttúruvernd.
Í lögunum, sem öðluðust gildi 1. júlí 1999, eru fjölmörg ákvæði um setningu reglugerða sem ekki voru í fyrri lögum. Unnið er að gerð þessara reglugerða á vegum ráðuneytisins og Náttúruverndar ríkisins og er vinnan mislangt á veg komin. Samkvæmt 5. gr. laganna skal ráðherra setja í reglugerð nánari fyrirmæli um hlutverk og starfsskyldur forstjóra Náttúruverndar ríkisins og innra skipulag stofnunarinnar. Reglugerðin er í vinnslu og verður væntanlega sett á næsta ári. Samkvæmt 7. gr. skal ráðherra, að fengnum tillögum Náttúruverndar ríkisins, setja gjaldskrá um kostnað og eftirlit með framkvæmdum, þar skal m.a. kveða á um umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlit beinist að. Unnið er að gerð reglugerðarinnar. Samkvæmt 11. gr. setur ráðherra í reglugerð nánari ákvæði um hlutverk náttúruverndarnefnda og tengsl þeirra við náttúrustofur samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992. Reglugerðin er í vinnslu. Samkvæmt 43. gr. skal ráðherra setja í reglugerð nánari ákvæði um auglýsingar utan þéttbýlis. Málið er í vinnslu. Samkvæmt 73. gr. skal setja í reglugerð ákvæði um hámark dagsekta til þess að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt náttúruverndarlögum og til þess að láta af atferli sem er ólögmætt. Málið er í vinnslu.
7. Lög um brunavarnir, nr. 75/2000.
Samkvæmt 7. gr. setur ráðherra brunamálaráði starfsreglur að fengnum tillögum þess. Málið er í vinnslu hjá ráðinu. Samkvæmt 11. gr. skal kveða á um lágmarkskröfur varðandi tækjakost, húsnæði og mannafla slökkviliða, svo og vatnsöflun til slökkviliðsstarfa. Jafnframt skal í reglugerð kveða á um búnað og þjálfun slökkviliðsmanna vegna mengunaróhappa á landi að fengnum tillögum Brunamálastofnunar í samráði við Hollustuvernd ríkisins. Brunamálastofnun vinnur að málinu og hefur samráð við Hollustuvernd ríkisins um þann þátt sem snýr að mengunaróhöppum. Samkvæmt 39. gr. setur ráðherra reglugerð um framkvæmd laganna að fenginni tillögu Brunamálastofnunar. Málið er í vinnslu. Samkvæmt sömu grein setur ráðherra reglugerð um brunavarnir í samgöngumannvirkjum að fengnum tillögum Brunamálastofnunar og að fenginni umsögn samgönguráðherra. Málið er í vinnslu hjá Brunamálastofnun.
8. Lög nr. 85/2000, um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
Í lögunum er kveðið á um það í 4. gr. að umhverfisráðherra og sjávarútvegsráðherra skuli setja í reglugerð almenn ákvæði um ýmis atriði sem lögin taka til. Unnið er að gerð reglugerðarinnar.