Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 442 — 128. mál.
Breytingartillaga
við frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2001.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (ÓÖH, EOK, ArnbS, KPál, ÍGP, DrH, TIO).
1. Við 4. gr. Nýir liðir:
1.4 Að fella niður ábyrgðargjöld skv. 6. gr. laga nr. 121/1997, um ríkisábyrgðir, sem lögð voru á Íbúðalánasjóð fram að gildistöku laga nr. 70/2000 sem undanþiggja sjóðinn greiðslu gjaldsins.
6.7 Að selja ferjuna Fagranes og nota söluandvirðið til uppgjörs vegna Djúpbátsins hf.
7.33 Að kaupa fasteignirnar Breiðöldu 5 og 7 á Hellu, Rangárvallasýslu, og nýta þær sem bráðabirgðahúsnæði vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi.
8.27 Að heimila Rafmagnsveitum ríkisins að kaupa Rafveitu Sauðárkróks og taka til þess nauðsynleg lán.
8.28 Að kaupa nýtt hlutafé í Íslenska járnblendifélaginu hf.
2. Við 4. gr. Breyttir liðir:
a. Liður 2.31 í lögunum orðast svo: Að selja fasteignina Skólabrú 2, Reykjavík, og ráðstafa andvirðinu til fasteigna Alþingis.
b. Liður 5.4 í lögunum orðast svo: Að selja hlut ríkissjóðs í Stofnfiski hf. og verja hluta af andvirðinu til greiðslu skulda Laxeldisstöðvar ríkisins við Endurlán ríkisins.