Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 596 — 348. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum 2002.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í stað 1.–5. gr. og 7. gr. komi ný grein, 1. gr., sem orðist svo ásamt fyrirsögn:
Um breytingu á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi, með síðari breytingum,
sbr. nýsamþykkt lög um breytingu á þeim lögum.
Fjárhæð tóbaksgjalds skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
1. Vindlingar: 172,20 kr. á hvern pakka (20 stk.).
2. Neftóbak: 2,04 kr. á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru.
3. Annað tóbak: 6,18 kr. á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru.