Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um gjald af áfengi
1995 nr. 96 28. júní
1. gr. Greiða skal til ríkissjóðs sérstakt gjald, áfengisgjald, af áfengi samkvæmt lögum þessum.
Áfengi samkvæmt lögum þessum telst hver sá vökvi sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli. Áfengismagn og áfengisinnihald skal ákveða við 20°C.
[Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skulu vörur sem innihalda meira en 2,25% af vínanda, en eru óhæfar til neyslu og ekki er hægt að gera neysluhæfar, undanþegnar áfengisgjaldi. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið nánar hvaða vörur falla hér undir.] 1)
1)L. 93/1998, 1. gr.
2. gr. Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja inn eða framleiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu.
Gjaldskyldir eru enn fremur þeir sem flytja með sér til landsins áfengi til eigin nota, svo og þeir sem fá sent áfengi erlendis frá án þess að það sé til sölu eða vinnslu. Heimilt er með reglugerð að takmarka innflutning samkvæmt þessari málsgrein við ákveðnar vörutegundir, hámarksmagn eða hámarksverðmæti og að setja skilyrði fyrir því hverjir megi flytja inn samkvæmt henni.
3. gr. [Áfengisgjald skal vera sem hér segir á hvern sentilítra af vínanda í hverjum lítra hins áfenga drykkjar samkvæmt flokkun hans í tollskrá:
1. Af öli sem flokkast í vörulið 2203, svo og af vörum sem innihalda blöndur af öli og óáfengum drykk og flokkast í vörulið 2206: 58,70 kr. á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
2. Af víni sem flokkast undir vöruliði 2204 og 2205, svo og af gerjuðum drykkjarvörum í vörulið 2206 sem ekki hafa verið blandaðar annarri gerjaðri drykkjarvöru eða óáfengri drykkjarvöru, enda sé varan að hámarki 15% að styrkleika og innihaldi eingöngu vínanda sem myndast við gerjun, án hvers kyns eimingar: 52,80 kr. á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
3. Af öðru áfengi: 57,50 kr.
Gjald skv. 1. mgr. skal reiknast hlutfallslega á brot af sentilítra af vínanda og brot af lítra hins áfenga drykkjar.
Ef umbúðir vöru greina ekki magn eða styrkleika áfengis sem aðilar sem tilgreindir eru í 2. mgr. 2. gr. flytja til landsins eða fá sent erlendis frá er tollyfirvöldum heimilt að meta magn eða styrkleika áfengis og ákvarða gjald samkvæmt því.] 1)
1)L. 93/1998, 2. gr.
[4. gr.]1) Þeir sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu ótilkvaddir senda tilkynningu um starfsemi sína til [ríkisskattstjóra]. 2) Þeir sem hefja gjaldskylda starfsemi skulu senda tilkynningu áður en starfsemin hefst.
Í tilkynningu skal tilgreina nafn, firmanafn, heimili og kennitölu rekstraraðila og hvers konar framleiðslu eða innflutning sé um að ræða.
[Ríkisskattstjóri skal] 2) halda skrár yfir alla þá sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. laga þessara.
Fjármálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr., svo og skyldu þeirra til að halda framleiðslu- og birgðabókhald.
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 93/1998, 4. gr.
[5. gr.]1) Gjald af innfluttu áfengi skal greitt við tollafgreiðslu þess. Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð 2) að veita gjaldfrest á áfengisgjaldi við innflutning í allt að tvær vikur enda séu settar fullnægjandi tryggingar.
Af áfengi, sem framleitt er innan lands til sölu þar, reiknast gjald við sölu eða afhendingu vörunnar frá verksmiðju eða framleiðanda til kaupanda og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla fer fram.
Þeir sem skyldir eru til að innheimta gjald skv. 2. mgr. skulu ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs í umdæmi því þar sem þeir eru heimilisfastir áfengisgjald sem þeim ber að standa skil á. Greiðslu skal fylgja skýrsla á þar til gerðu eyðublaði um hina gjaldskyldu sölu.
Hvert uppgjörstímabil vegna gjaldskyldrar innlendrar framleiðslu er tvær vikur. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok uppgjörstímabils.
Fjármálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um innheimtu áfengisgjalds, þar á meðal um tryggingar fyrir skilum á gjaldi skv. 1. og 2. mgr.
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)Rg. 390/1999, sbr. 898/1999.
[6. gr.]1) [Áfengisgjald skal fellt niður eða endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:] 2)
1. Við sölu áfengis úr landi.
2. [Við innflutning og sölu á áfengi til tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra forðageymslna. Jafnframt af áfengi sem áfengisgjald hefur verið reiknað eða greitt af en er síðar sent til útlanda, í tollfrjálsa verslun, í tollvörugeymslu, í tollfrjálsa forðageymslu eða á frísvæði eða er fargað undir eftirliti tollyfirvalda.] 3)
3. Við innflutning og sölu á áfengi til aðila sem njóta skattfrelsis hér á landi samkvæmt alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og aðila sem ríkisstjórn ákveður.
4. Við innflutning og sölu á áfengi til framleiðslu á vörum sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum til framleiðenda sem hafa leyfi til að selja áfengi skv. 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga.
5. [Af áfengi sem ferðamenn og farmenn hafa með sér inn í landið til eigin nota, að tilteknu hámarki sem fjármálaráðherra kveður á um í reglugerð.] 2)
[6. Af áfengi, sem talið er upp í lyfjaskrá, til lækna og lyfsala til sölu sem lyf.
7. Af áfengi til iðnþarfa samkvæmt nánari skilgreiningu fjármálaráðherra.] 2)
… 3)
[Fjármálaráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, m.a. um skilyrði niðurfellingar eða endurgreiðslu.] 2)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 93/1998, 5. gr. 3)L. 104/2000, 15. gr.
[7. gr.]1) [Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skal 1% renna í Forvarnasjóð. 2) Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu. Styrki skal veita úr sjóðnum til forvarnastarfa á verkefnagrundvelli. Áfengis- og vímuvarnaráð gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um veitingu styrkja úr Forvarnasjóði.
Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu 0,3% renna til áfengiseftirlits lögregluyfirvalda.] 3)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)Rg. 537/1995. 3)L. 93/1998, 6. gr.
[8. gr.]1) … 2)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 104/2000, 16. gr.
[9. gr.]1) [Úrskurður tollstjóra um niðurfellingu eða endurgreiðslu áfengisgjalds skv. 6. gr. sætir kæru til [fjármálaráðherra] 2) í samræmi við 102. gr. tollalaga, nr. 55/1987. Þá skulu ákvæði tollalaga gilda að því leyti sem lög þessi kveða ekki á um gjaldskyldu, gjaldfrelsi, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, álagningu, innheimtu, lögvernd, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald af innfluttu áfengi.] 3)
Að því leyti sem ekki eru ákvæði í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, framtöl, eftirlit, stöðvun atvinnurekstrar, viðurlög, sektir, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald samkvæmt lögum þessum af áfengi, sem er framleitt eða unnið að einhverju leyti hér á landi, skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga um virðisaukaskatt og ákvæði reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim lögum, svo og ákvæði laga um vörugjald.
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 155/2000, 22. gr. 3)L. 104/2000, 17. gr.
[10. gr.]1) Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð 2) nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)Rg. 505/1998, sbr. 527/2000; rg. 526/2000, sbr. 791/2000.
[11. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. september 1995.
1)L. 93/1998, 3. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …