Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1067 — 573. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um takmarkanir á tóbaksreykingum.
1. Var heilbrigðisnefndum falið að gera sérstakt átak eftir 1. ágúst 2001 til að framfylgja ákvæðum II. kafla laga um tóbaksvarnir um merkingar, auglýsingar og sölu tóbaks?
Framkvæmd tóbaksvarnaeftirlits er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga en Hollustuvernd ríkisins sér um samræmingu eftirlitsins.
Að höfðu samráði við umhverfisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið gekkst Hollustuvernd ríkisins fyrir kynningu á breytingum á tóbaksvarnalögunum í ágúst sl. Þar var athygli heilbrigðiseftirlitsins sérstaklega vakin á ákvæðum 7. og 9. mgr. 8. gr. laganna, þar sem segir m.a. „Þeir einir sem orðnir eru 18 ára mega selja tóbak“ og: „Til þess að selja tóbak í smásölu þarf sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar á viðkomandi eftirlitssvæði.“
Heilbrigðisráðuneytið setti 7. júlí sl. reglugerð um tímabundnar undanþágur frá 18 ára aldurstakmarki vegna sölu tóbaks, nr. 543/2001. Reglugerðin var sett að tilhlutan heilbrigðiseftirlitsins og umhverfisráðuneytisins og í henni voru undanþáguákvæði til sex mánaða með ákveðnum skilyrðum. Ekki er annað vitað en vel hafi gengið að framfylgja ákvæði tóbaksvarnalaganna um söluleyfi.
2. Var heilbrigðisnefndum falið að gera sérstakt átak skv. III. kafla sömu laga um takmörkun og verndun gegn tóbaksreyk?
Frá því að fyrstu heildarlögin um tóbaksvarnir öðluðust gildi 1. janúar 1985 hefur heilbrigðisráðuneytið framfylgt lögum um tóbaksvarnir og þar með þeim ákvæðum þeirra sem lúta að takmörkun og banni reykinga á stöðum sem almenningur á aðgang að. Það er óhætt að segja að mikið hafi áunnist í þeim efnum. Hvað varðar hert ákvæði 9. greinar tóbaksvarnalaganna, m.a. um reyklaus svæði og bætta loftræstingu, hefur heilbrigðiseftirlitið gert viðkomandi aðilum grein fyrir þeim. Oft þarf viðamiklar breytingar á húsnæði veitinga- og skemmtistaða vegna þessara hertu ákvæða. Flestir rekstraraðilar eru af vilja gerðir að uppfylla ákvæði um aukið rými fyrir reyklaus svæði og bætta loftræstingu á veitinga- og skemmtistöðum. Það getur þó reynst erfitt nema gefinn sé sanngjarn frestur til úrbóta, sérstaklega á skemmtistöðum. Reglubundið heilbrigðiseftirlit fer að jafnaði fram árlega á starfsleyfisskyldum og eftirlitsskyldum stöðum og oftar ef út af er brugðið. Úttekt fer fram á nýrri og breyttri starfsemi.
3. Hve hátt hlutfall er þetta eftirlit af venjubundnum eftirlitsstörfum heilbrigðisfulltrúanna?
Heilbrigðiseftirliti sveitafélaga, sem rekið er á 10 svæðum, ber að framfylgja fjölda laga og reglugerða. Eftirlit vegna tóbaksvarna er alla jafnan unnið sem hluti af almennu heilbrigðiseftirliti auk þess sem kvörtunum er sinnt. Flest svæðin reikna með að hlutfall eftirlits vegna tóbaksvarna sé á bilinu 5–10% en hafi verið nokkru meira í byrjun eins og gefur að
skilja þegar fylgja þarf eftir nýmælum.
4. Hefur heilbrigðisfulltrúum verið fjölgað vegna þessa eftirlits?
Heilbrigðisfulltrúum hefur ekki verið fjölgað vegna tóbaksvarnaeftirlits, en á stöku svæði var ráðið í hlutastarf vegna álags þegar lögin tóku gildi.
5. Hefur verið gerð úttekt á veitinga- og skemmtistöðum og öðru húsnæði sem lögin taka til? Ef ekki, stendur til að gera slíka úttekt?
Fá svæði hafa gert sérstaka úttekt en önnur svæði hyggjast gera hana þegar ár verður liðið frá gildistöku laganna. Úttekt er hins vegar gerð við reglubundið eftirlit.
6. Hve margir staðir falla undir eftirlitsskyldu heilbrigðisnefndanna?
Þessari spurningu er ekki hægt að svara tæmandi. Heilbrigðiseftirlitið hefur m.a. eftirlitsskyldu samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, og lögum nr 93/1995, um matvæli. Undir eftirlitið falla stofnanir og fyrirtæki eins og allir útsölustaðir tóbaks, veitinga- og skemmtistaðir, skólar og heilbrigðisstofnanir, verslanir, framleiðslu- og innflutningsfyrirtæki svo og staðir sem veita almenningi þjónustu. Sem dæmi má nefna að undir heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur falla um 1.500 fyrirtæki á matvæla- og hollustuháttasviði.
7. Hve margir staðir hafa staðist úttekt heilbrigðisfulltrúa?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um þetta. Eftirlit með tóbaksvörnum er fellt inn í almennt heilbrigðiseftirlit og við það eru væntanlega gerðar ýmsar athugasemdir sem varða bæði tóbaksvarnir og annað sem bæta þarf úr.
8. Hvaða athugasemdir eru algengastar
a. hjá heilbrigðisfulltrúum,
b. frá neytendum?
Algengustu athugasemdirnar varðandi tóbaksvarnaeftirlit eru: a) að reyklaus svæði vanti, b) að reykur berist yfir á reyklaus svæði.
9. Hefur komið til kæru vegna brota á þeim ákvæðum laganna sem snúa að hollustuvernd?
Komið hefur til kæru vegna sölu á tóbaki til ungmenna. Heilbrigðiseftirlitið starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og beitir þvingunarúrræðum þeirra gerist þess þörf, oftast áminningu sem er þá undanfari frekari þvingunaraðgerða. Þar sem tiltölulega stutt er síðan ný tóbaksvarnalög öðluðust gildi hefur lítið reynt á þvingunarúrræðin enn sem komið er.