Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1301 — 494. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á almennum hegningarlögum og lögreglulögum.
(Eftir 2. umr., 20. apríl.)
I. KAFLI
Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940.
1. gr.
Sömu refsingu skal hver sá sæta sem ógnar eða beitir valdi gagnvart sendierindreka erlends ríkis hér á landi eða ræðst inn á eða veldur skemmdum á sendiráðssvæði eða hótar slíku.
II. KAFLI
Breyting á lögreglulögum, nr. 90 13. júní 1996.
2. gr.
a. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ef uggvænt þykir að óspektir verði á mótmælafundi, í kröfugöngu eða á annarri slíkri samkomu á opinberum stað er lögreglu heimilt að banna að maður breyti andliti sínu eða hylji það eða hluta þess með grímu, hettu, málningu eða öðru þess háttar sem er til þess fallið að koma í veg fyrir að kennsl verði borin á hann.
b. Í stað orðanna „skv. 2. mgr.“ í 3. mgr., sem verður 4. mgr., kemur: skv. 2. og 3. mgr.
3. gr.
Starfslokaaldur.
4. gr.
5. gr.
a. A-liður 2. mgr. hljóðar svo: vera íslenskir ríkisborgarar, 20–35 ára, en þó má víkja frá aldurshámarkinu við sérstakar aðstæður.
b. Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, b-liður, sem hljóðar svo: hafa ekki gerst brotleg við refsilög; þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt um liðið frá því að það var framið.
c. Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: og eru ákvarðanir hennar um val nema endanlegar.
6. gr.
Í stað orðanna „a-, b- og c-liða 2. mgr. 38. gr. laganna“ í 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: a-, b-, c- og d-liðum 2. mgr. 38. gr. laganna.
7. gr.
Þeir sem náð hafa 63 ára aldri við gildistöku laga þessara en eru ekki orðnir 65 ára geta innan sex mánaða frá gildistöku laganna óskað eftir því að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um þá. Nái þeir 65 ára aldri innan sex mánaða frá gildistöku laganna skulu þeir setja fram slíka ósk áður en þeim aldri er náð. Óski lögreglumaður eftir því að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um hann skal hann senda bréflega tilkynningu þess efnis til embættis ríkislögreglustjóra.
Þeim sem náð hafa 65 ára aldri við gildistöku laganna en eru ekki orðnir 70 ára skal veitt lausn frá embætti í síðasta lagi frá og með 1. maí 2003 nema þeir óski þess fyrir þann tíma að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um þá. Skal þá senda bréflega tilkynningu þess efnis til embættis ríkislögreglustjóra.
8. gr.