Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1439  —  538. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002 –2005.

Frá 2. minni hluta iðnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristján Skarphéðinsson frá iðnaðarráðuneyti, Jón Kalmansson, starfsmann verkefnisstjórnar um byggðaáætlun, Halldór Halldórsson, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, Ingimar Halldórsson og Eystein Gunnarsson frá sveitarfélögum á Vestfjörðum, Þórð Skúlason og Gunnlaug Júlíusson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Elísabetu Benediktsdóttur frá Atvinnuþróunarfélagi Austurlands, Benedikt Guðmundsson frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Ólaf Sveinsson frá Samtökum sveitarfélaga Vesturlands, Elínu R. Líndal frá Húnaþingi vestra, Magnús B. Jónsson frá Skagaströnd, Theodór Bjarnason og Bjarka Jóhannesson frá Byggðastofnun, Baldur Valgeirsson frá Iðnþróunarfélagi Norðurlands vestra, Ágúst Þór Bjarnason frá Blönduósbæ og Ingibjörgu Hafstað frá Sveitarfélaginu Skagafirði. Umsagnir bárust frá Landssíma Íslands hf., vinnuhópi sjö atvinnuþróunarfélaga, Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Hólaskóla, Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Eyþingi, Iðntæknistofnun, Kvasi – samtökum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Háskólanum á Akureyri, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Alþýðusambandi Íslands, Íslandssíma hf., Félagi íslenskra framhaldsskóla, Búnaðarþingi 2002, Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Vélstjórafélagi Íslands, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Háskólanum í Reykjavík, Lánasjóði landbúnaðarins, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Fræðsluneti Austurlands, Byggðastofnun, Bandalagi háskólamanna, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Þjóðhagsstofnun. Jafnframt bárust nefndinni gögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögum á Vestfjörðum.
    Annar minni hluti átelur harðlega flaustursleg vinnubrögð við gerð áætlunarinnar og umfjöllun um hana. Í hana vantar stefnu og heildarsýn varðandi byggð og búsetumál í landinu öllu. Það vantar bæði áætlun um hvernig kjör fólks skulu jöfnuð eftir aðstæðum og búsetu og áætlun um jöfnun samkeppnisstöðu atvinnulífs í hinum dreifðu byggðum landsins. Á þeim málum er ekkert tekið. Áætlunin er almennt orðuð án þess að þar séu settar fram áætlanir um kostnað og framlög til einstakra málaflokka sem er þó algjörlega nauðsynlegt til þess að ná einhverjum árangri í þessum málaflokki. Áætlunin hefur fengið mjög takmarkaða umfjöllun í nefndinni. Hún var afgreidd í miklum flýti og ljóst er að það hefði þurft að vinna hana miklu betur og samstilla hana og samhæfa við þær tillögur sem hafa komið frá öðrum stjórnmálaöflum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur lagt fram fjölda mála sem eiga heima í áætlun af þessu tagi og má nefna þar til sögunnar styrkingu skipaiðnaðar, framlög til atvinnuþróunarfélaga, strandsiglingar, almenningssamgöngur í Eyjafirði og aðgerðir í byggðamálum. Þá er þess að geta að sjávarútvegsstefnan er veigamikill þáttur í þróun byggðamála. Hún er í uppnámi og hefur engin tilraun verið gerð af hálfu stjórnarmeirihlutans til þess að koma til móts við sjónarmið stjórnarandstöðunnar í þeim efnum.
    Margt í áætluninni er þó góðra gjalda vert sem markmið, en áætlun af þessu tagi er gagnslaus nema með fylgi áætlun um framlög til aðgerða. Byggðaáætlun verður að byggjast á efnahagslegum forsendum, en þær eru ekki fyrir hendi þannig að líta verður á þessa áætlun sem almennar bollaleggingar. Það gerist ekkert nema fyrir hendi sé markviss áætlun um fjárveitingar til margra þeirra málaflokka sem dregnir eru fram í tillögunni og eru í sjálfu sér góðra gjalda verðir. Þannig telur 2. minni hluti að á grunni tillögunnar hefði þurft að vera viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar um tilgreinda fjármuni til þessara hluta.
    Annar minni hluti telur að vandi hinna dreifðu byggða sé af pólitískum toga. Stefna ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur verið hlutafélagavæðing og síðan einkavæðing grunnþjónustufyrirtækja í samfélaginu. Stefnan hefur verið sú að horfa á hagkvæmni stærðarinnar og stuðla að fækkun og stækkun fyrirtækja. Stefna ríkisstjórnarflokkanna er þannig andstæð hugmyndum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um fjölbreytilegt atvinnulíf og styrkar stoðir þess í hinum dreifðu byggðum landsins.
    Annar minni hluti átelur harðlega að áætlunin hafi ekki fengið meiri og víðtækari umfjöllun, bæði í iðnaðarnefnd og á Alþingi. 2. minni hluti telur miður að ekkert hafi verið gert á Alþingi til þess að skapa breiða samstöðu um innihald áætlunarinnar. Til þess var fullt tilefni og engin ástæða til þess að ætla annað en að það hefði getað tekist með meiri umfjöllun og vinnu. Þessi byggðaáætlun er alfarið á ábyrgð stjórnarmeirihlutans og mun 2. minni hluti því sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 30. apríl 2002.



Árni Steinar Jóhannsson.