Ferill 711. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1471 — 711. mál.
Frumvarp til laga
um Umhverfisstofnun.
(Eftir 2. umr., 3. maí.)
1. gr.
Hlutverk stofnunarinnar er:
a. að annast starfsemi sem Hollustuvernd ríkisins er falin samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum, lögum nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum, lögum nr. 67/1985, um veitinga- og gististaði, með síðari breytingum, lögum nr. 74/1984, um tóbaksvarnir, með síðari breytingum, lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, sóttvarnalögum, nr. 19/1997, með síðari breytingum, lögum nr. 17/2000, um framkvæmd samnings um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra, og lögum nr. 75/2000, um brunavarnir,
b. að annast starfsemi sem Náttúruvernd ríkisins er falin samkvæmt lögum nr. 44/1999, um náttúruvernd, með síðari breytingum, lögum nr. 36/1974, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, með síðari breytingum, lögum nr. 61/1992, um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, með síðari breytingum, lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar, með síðari breytingum, lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum, lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum, lögum nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, með síðari breytingum, lögum nr. 117/1994, um skipulag ferðamála, með síðari breytingum, og lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum,
c. að annast starfsemi sem embætti veiðistjóra er falin samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum,
d. að annast starfsemi hreindýraráðs samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum,
e. að annast starfsemi dýraverndarráðs og framkvæmd laga um dýravernd, nr. 15/1994, með síðari breytingum.
2. gr.
Stofnuninni er skipt í fagsvið og starfar forstöðumaður yfir hverju sviði. Forstöðumenn skulu hafa háskólamenntun og sérþekkingu eða starfsreynslu á viðkomandi sviði. Forstjóri ræður forstöðumenn. Einn forstöðumanna gegnir starfi staðgengils forstjóra. Forstjóri ræður jafnframt annað starfsfólk stofnunarinnar.
Ráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum forstjóra, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar.
3. gr.
4. gr.
1. 20. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, fellur úr gildi.
2. 5. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd, fellur úr gildi.
3. 1. mgr. 4. gr. og 3. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, falla úr gildi.
4. 2. mgr. 17. gr. laga nr. 15/1994, um dýravernd, með síðari breytingum, orðast svo:
Umhverfisstofnun annast eftirlit með framkvæmd laganna.
Ákvæði til bráðabirgða.
2. Þegar lög þessi hafa verið samþykkt skal umhverfisráðherra skipa starfshóp sem í eiga sæti auk fulltrúa ráðuneytisins forstjóri Hollustuverndar ríkisins, forstjóri Náttúruverndar ríkisins og veiðistjóri. Starfshópurinn skal undirbúa gildistöku laganna.
3. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal forstjóri Umhverfisstofnunar skipaður frá 1. ágúst 2002 og skal hann frá þeim tíma taka þátt í starfshópi skipuðum skv. 2. tölul.