Fyrirspurn um flutningskostnað

Miðvikudaginn 22. janúar 2003, kl. 18:28:14 (2942)

2003-01-22 18:28:14# 128. lþ. 63.92 fundur 363#B fyrirspurn um flutningskostnað# (um fundarstjórn), KLM
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 128. lþ.

[18:28]

Kristján L. Möller:

Herra forseti. Ég vil örlítið spyrjast fyrir um þá fyrirspurn sem er 9. liður á dagskrá. Það er fyrirspurn til samgrh. um flutningskostnað. Þetta er ákaflega merkileg fyrirspurn og mál sem brennur mjög á landsbyggðarfólki, um að takast á við þennan ofboðslega flutningskostnað sem fólk býr við. Ég vil spyrja út í það hvers vegna þessi fyrirspurn hefur ekki komið á dagskrá í dag af því að hún var næst á undan fyrirspurn minni og vegna þess að hæstv. samgrh. er staddur hér. Ég hefði skilið þetta vel ef hæstv. samgrh. hefði verið fjarverandi. En þar sem hann er hér til staðar og ég sá hv. fyrirspyrjanda hér rétt áðan þá langar mig að vita hvers vegna þessu máli var frestað.