Álverksmiðja í Reyðarfirði

Þriðjudaginn 28. janúar 2003, kl. 19:31:12 (3124)

2003-01-28 19:31:12# 128. lþ. 66.10 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv., ÖJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 128. lþ.

[19:31]

Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Í upphafi þingfundar í dag, þegar hæstv. iðnrh. mælti fyrir því frv. sem hér hefur verið til umfjöllunar vísaði hún því til umfjöllunar í iðnn. þingsins. Ég vil koma því á framfæri við hæstv. forseta, án þess að ég sé að ætlast til svara af hans hálfu á þessari stundu, að mér finnist eðlilegt að frv. fái einnig umfjöllun í umhvn. þingsins og í efh.- og viðskn. þingsins, einfaldlega vegna þess að frv. tekur til þeirra þátta sem þessar nefndir fjalla um.

Ég endurtek að ég er ekki að óska eftir svörum frá hendi hæstv. forseta þingsins á þessari stundu, en vil koma þessum ábendingum á framfæri.

(Forseti (ÁSJ): Forseti mun taka málið til vinsamlegrar athugunar á seinni stigum.)