[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.
Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Tillögur okkar í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði í skattamálum í tengslum við þessi fjárlög byggja fyrst og fremst á því að afla fjár til að standa straum af kostnaði við þær útgjaldatillögur sem við gerum. Við leggjum til að fallið verði frá því að lækka hátekjuþrepið um 2% en með því móti færum við ríkissjóði 300 millj. kr. Við leggjum til 2% hækkun á fjármagnstekjuskatti en í því sambandi leggjum við áherslu á að gilda þurfi frítekjumark til að hlífa smásparendum. Þá leggjum við til hækkun á tekjuskatti fyrirtækja sem afli ríkissjóði 750 millj. kr.
VG hefur við þessa umræðu um fjárlögin beitt sér fyrir því að snúið verði af þeirri braut sem farin hefur verið í skattamálum allar götur frá árinu 1991, fyrst í samstarfi Sjálfstfl. og Alþýðuflokks, síðan í samstarfi Sjálfstfl. og Framsfl. en á öllu þessu tímabili hafa tillögurnar gengið út á að færa skattbyrði af fyrirtækjum yfir á launafólk með slæmum félagslegum afleiðingum.