Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Frv. sem hér er flutt er í beinu framhaldi af samkomulagi sem náðist við samstarfsnefnd aldraðra og tekur á þeim atriðum sem það samkomulag náði til. Við höfum verið með vasapeningamálið til athugunar í ráðuneytinu. Ég hef ekki niðurstöðu þess á þessari stundu en við höfum gert ráðstafanir til að líta á samhengið í þeim málum og að því mun unnið á næstunni.