Heimagerðar landbúnaðarafurðir

Miðvikudaginn 10. mars 2004, kl. 14:21:01 (5096)

2004-03-10 14:21:01# 130. lþ. 81.3 fundur 674. mál: #A heimagerðar landbúnaðarafurðir# fsp. (til munnl.) frá landbrh., DrH
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 130. lþ.

[14:21]

Drífa Hjartardóttir:

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur fyrir að vekja máls á þessu merkilega máli. Það er svo sannarlega tími til kominn að við ræðum þessi mál, þ.e. að hægt verði að framleiða osta t.d. til að selja ferðamönnum heima á bændabýlum.

Í Bretlandi t.d. er til félag sem heitir Home Maker sem er félag þeirra sem framleiða og selja heima á búum sínum og allt er þetta undir heilbrigðiseftirlitskröfum. Þar er það gert að skilyrði að eldhús séu hrein og allt til staðar sem þarf að vera. Ég vil líka vekja athygli á því að ekki má selja ógerilsneydda mjólk. Bóndi má gefa mjólk ógerilsneydda en hann má ekki selja hana.

Eins hefur það verið rætt að með aukinni kornframleiðslu getum við jafnvel farið að framleiða viskí og hafa Landeyjarnar verið nefndar í því tilviki. Síðan er ágætur þingmaður hér, sem mun örugglega taka til máls á eftir, með þáltill. um heimagerð vín.