Lokuð öryggisdeild

Miðvikudaginn 10. mars 2004, kl. 15:03:07 (5121)

2004-03-10 15:03:07# 130. lþ. 81.5 fundur 597. mál: #A lokuð öryggisdeild# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., DJ
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 130. lþ.

[15:03]

Dagný Jónsdóttir:

Frú forseti. Ég vil einnig þakka fyrir fyrirspurn hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur og finnst reyndar dálítið undarlegt að hér skuli fyrirspurnin vera komin fram í þriðja skipti á sama þingi, vegna þess að hæstv. ráðherra hefur tekið það skýrt fram að hann hefur vonir um að lokuð öryggisdeild muni taka til starfa síðar á árinu. Þess vegna er mjög mikilvægt að nefndin skili tillögum sínum sem fyrst og hæstv. ráðherra sagði áðan að þær muni koma í lok mánaðar og við verðum bara að treysta á það.