[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 130. lþ.
Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ólíkt höfumst við nú að. Hv. þm. sat sjálf við gerð EES-samninganna að hún segir. Það kann vel að vera. Ég stóð hér þá sem þingmaður og barðist gegn mörgum ákvæðum og var alltaf fullvissaður um að þessir samningar snerust ekki um landbúnaðarmál. Ég man eftir því að Jón Baldvin Hannibalsson taldi á fingrum sínum hvað eftir annað að þessir samningar snerust ekki um landbúnaðarmál. (Gripið fram í.) Ég trúi því að bæði þær tillögur og gjörðir sem ég hef staðið í sem landbrh. til að takmarka fiskeldið við mjög fáa firði, setja því ströngustu skorður sem settar hafa verið á allan hátt, geri það að verkum að við erum ekki að taka þar áhættu nema í lágmarki.
Það var ákvörðun sem einhver tók á undan mér að flytja hingað inn norskan laxastofn. Hann var til í landinu þegar ég tók við og er til og verður til og menn vilja hafa hann fyrir atvinnutækifæri.