Fjáröflun til vegagerðar, vörugjald af ökutækjum o.fl.

Fimmtudaginn 27. nóvember 2003, kl. 15:14:13 (2236)

2003-11-27 15:14:13# 130. lþ. 36.1 fundur 90. mál: #A fjáröflun til vegagerðar, vörugjald af ökutækjum o.fl.# (hækkun þungaskatts og vörugjalds) frv. 119/2003, GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 130. lþ.

[15:14]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir góð og greinargóð svör. Hins vegar vekja svörin upp eina spurningu og hún er þessi, ef hæstv. fjmrh. vildi svara því í öðru andsvari: Á að skilja þetta mál þannig að hér verði komið inn með frumvarpið sem var verið að boða varðandi olíudæmið, án þess að það fylgi því nein útfærsla um hækkaðan flutningskostnað?