Almannatryggingar

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 14:46:10 (2926)

2003-12-06 14:46:10# 130. lþ. 44.3 fundur 418. mál: #A almannatryggingar# (aldurstengd örorkuuppbót) frv. 130/2003, BJJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[14:46]

Birkir J. Jónsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að játa það hér að við framsóknarmenn lofuðum milljarði í þennan málaflokk fyrir kosningar (Gripið fram í.) Við lofuðum aldrei 1.500 millj. og þannig er það. (Gripið fram í)

Hins vegar hélt hv. þm. því fram áðan að frambjóðendur og þingmenn hafi vitað um útreikninga Tryggingastofnunar ríkisins upp á 1,5 milljarða. Það er rangt og það hefur oft komið fram í þessari umræðu. En það er með þennan málflutning eins og allt annað í þessari umræðu að hér er öllu snúið á hvolf. Við sem ærleg lofuðum öryrkjum 1 milljarði fyrir kosningar erum hér gerð að ómerkingum í orðum hv. stjórnarandstæðinga. En ég segi enn og aftur. Það er rangt. Við lofuðum 1.000 millj. og við það verður staðið.

En svo er það önnur saga að auðvitað viljum við halda áfram að bæta kjör öryrkja og ég vil vinna að því. En því miður er það málflutningur stjórnarandstöðunnar sem má skilja þannig að framsóknarmenn hafi í aðdraganda kosninga lofað 1.500 millj. til öryrkja. Það er rangt. Við lofuðum (JBjarn: Að standa við samkomulagið.) milljarði. Við lofuðum að standa við samkomulagið. Það er rétt hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni, enda verður grunnlífeyrir yngstu öryrkjanna tvöfaldaður. Upp á það hljóðaði samkomulagið. Svo verða kjör þeirra sem eldri eru einnig bætt. (Gripið fram í.)