[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.
Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er að mörgu leyti mjög fróðlegt að fá tækifæri til að skyggnast inn í sálarlíf ungra framsóknarmanna. Það er hins vegar ekkert mjög skemmtileg lífsreynsla að fylgjast með því hvernig þeir reyna að búa til nýjan sannleika með því að breyta staðreyndum máls.
Það kemur mér ekkert á óvart að samningaviðræður hafi staðið í langan tíma við Öryrkjabandalag Íslands. Það er staðhæft að það hafi verið frá því í febrúar árið 2002. Það má ætla að allkirfilega hafi verið gengið frá samkomulagi sem tekur hálft annað ár að smíða. Og það þurfti engar gægjur, hv. þm., vegna þess að í Morgunblaðinu og í Ríkisútvarpinu voru forsendur samningsins kynntar í tölum, nákvæmlega, grunnlífeyrir átti að hækka úr 20.600 kr. í 41.200 kr. og síðan átti að skerða þessa upphæð um 421 kr. á ári. Það var greint frá þessu í fjölmiðlum. Hefur þingmaðurinn virkilega ekki kynnt sér málið?