Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 600. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 906  —  600. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um milliliðalaust lýðræði.

Flm.: Björgvin G. Sigurðsson, Jón Gunnarsson, Katrín Júlíusdóttir, Jóhann Ársælsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Össur Skarphéðinsson.


    Alþingi ályktar að setja á stofn nefnd sem kanni möguleika við að þróa milliliðalaust lýðræði og kosti rafrænna aðferða við framkvæmd þess. Nefndin kanni einnig hvernig hægt er að nota netið til að þróa milliliðalaust lýðræði og hafi þar að leiðarljósi öfluga persónuvernd við framkvæmd kosninga og þjóðaratkvæðagreiðslna á netinu.
    Nefndin verði skipuð fulltrúa Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Viðskiptaháskólans á Bifröst, Háskólans á Akureyri, Neytendasamtakanna, ASÍ, Sambands íslenskra sveitarfélaga, stúdentaráðs Háskóla Íslands, og fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi.
    Nefndin kanni jafnframt hvaða áhrif milliliðalaust lýðræði hefði á samfélagið, efnahagslega, félagslega og stjórnmálalega, sérstaklega með tilliti til sveitarstjórna og sveitarfélaganna þar sem auðvelt er að nota milliliðalaust lýðræði í miklum mæli. Nefndin skili greinargerð eigi síðar en eftir sex mánuði.

Greinargerð.


    Markmiðið með þessari tillögu er að þróa lýðræðið áfram í ljósi aukinnar menntunar og bætts aðgangs að upplýsingum. Markmiðið er að Ísland verði fánaberi í framþróun lýðræðislegra stjórnarhátta þar sem hinn almenni borgari kemur í sem mestum mæli að meginákvörðunum samfélagsins. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á félagslegum og efnahagslegum aðstæðum á Vesturlöndum síðustu áratugi kalla á breytingar á lýðræðisfyrirkomulaginu. Almenn og góð menntun, mikil tölvueign og meiri frítími en nokkurn tíma áður kallar á að almenningur hafi miklu meira um hagi sína að segja en áður. Sá tími á að vera liðinn að fulltrúar almennings taki allar ákvarðanir. Tímabært er að færa valdið í ríkari mæli til fólksins.

Lýðræði 21. aldarinnar.
    Mikilvægt er að hafa það að leiðarljósi við stefnumörkun um beint lýðræði að hlutverk sveitarfélaganna verður æ mikilvægara eftir því sem þau stækka og verkefnum þeirra fjölgar. Valddreifingunni frá ríki til sveitarfélaga á að fylgja aukið milliliðalaust lýðræði þar sem valdið er um leið fært frá Alþingi til nærþjónustunnar í sveitarfélögunum.
    Við innleiðingu netsins í lýðræðisferil okkar yrði einnig komið á samræðu borgaranna við stjórnvöld, þar sem borgarar landsins gætu lagt inn hugmyndir og verið virkir þátttakendur í stjórnun lands síns. Með sama hætti eflist og styrkist stjórnmálasamræða í millum borgaranna um kjör sín.

Nýjar leiðir.

    Það fyrirkomulag sem viðgengist hefur síðustu tvær aldirnar í formi fulltrúalýðræðisins hefur að mörgu leyti runnið sitt skeið. Það er tímabært að kanna nýjar leiðir til að íbúar geti haft bein og milliliðalaus áhrif á stjórn samfélagsins. Heimurinn hefur breyst frá þeim tíma þegar verjandi var að óskir fólksins þyrftu að fara í gegnum fulltrúa þess að einu eða öllu leyti, fulltrúa sem höfðu tíma og aðstæður til að sinna mikilvægum ákvarðanatökum ólíkt almenningi. Nú hefur þorri almennings aðstæður og upplýsingar til að taka sjálfur stærri ákvarðanir um hagi sína og líf. Milliliðalaust lýðræði leiðir til heilbrigðari og opnari stjórnarhátta þar sem tryggt er að almannahagsmunir ráði för en ekki sérhagsmunir einstakra valdablokka sem geta keypt sér áhrif í krafti fjármagnsins og aukinna áhrifa viðskiptalífsins í samfélaginu. Beint lýðræði er góð leið til þess að búa svo um hnúta að ýtrustu hagsmunir hins almenna borgara ráði ákvarðanatöku um stærstu hagsmunamál þjóðarinnar.

Þjóðaratkvæðagreiðslur.
    Milliliðalaust lýðræði er sú framþróun sem þarf að eiga sér stað í stjórnmálalífinu í formi þjóðaratkvæðagreiðslna eða atkvæðagreiðslna innan einstakra sveitarfélaga. Þjóðaratkvæðagreiðslu eða allsherjaratkvæðagreiðslu atkvæðisbærra íbúa sveitarfélags um ákveðin mál á að vera hægt að krefjast af tilteknum hluta atkvæðisbærra borgara, ákveðins hlutfalls alþingismanna eða sveitarstjórnarmanna viðkomandi sveitarfélaga, sbr. frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur um þjóðaratkvæðagreiðslur á 128. þingi. Sveitarstjórnarstigið er sá vettvangur samfélagsins sem best er til þess fallinn að stuðla að jöfnuði og félagslegu réttlæti. Þar greiðum við eftir getu og fáum þjónustu eftir þörfum. Sveitarfélögin eru vettvangur nærþjónustunnar og innan þeirra er hvað auðveldast að hafa yfirsýn yfir kjör fólks.

Hlutverk sveitarstjórna og íbúalýðræði.
    Breytt hlutverk sveitarstjórna kallar á nýjar reglur þegar veigamiklar ákvarðanir eru teknar innan þeirra. Íbúalýðræði felur í sér lausn á því. Þar eru íbúar sveitarfélagsins kallaðir til leiks, fengnir til samráðs um lausnir og skipulag. Enginn veit betur en fólkið sjálft hverjar þarfirnar eru og hvernig íbúar hvers sveitarfélags vilja forgangsraða fjármunum þess í eigin þágu. Samráðsvettvangur íbúalýðræðisins felur það einnig sjálfkrafa í sér að deilur og átök minnka til muna og stjórnmálin verða heilbrigðari fyrir vikið. Samræður um sameiginleg mál koma í stað hatrammra deilna. Sveitarfélögin ættu að koma sér upp formlegum farvegi fyrir íbúana, íbúaþingi, um öll meginmál samfélagsins.
    Hlutverk sveitarstjórna hefur breyst verulega á liðnum missirum, en kerfið hefur staðið í stað. Verkefnum hefur fjölgað mikið og samstarf sveitarfélaganna við einkageirann hefur að sama skapi aukist, í formi ýmiss konar þjónustusamninga. Á næstu árum er fyrirsjáanlegt að þetta hlutverk breytist enn frekar eftir því sem valddreifing eykst í samfélaginu og fleiri hlutverk eru færð frá ríki til sveitarfélaga. Ákvarðanirnar á að taka sem næst fólkinu og með fólkinu. Til nánari upplýsinga er vísað í frumvarp Margrétar Frímannsdóttur o.fl. um íbúalýðræði (þskj. 156, 156. mál).

Frá Aþenu til alnetsins.
    Kominn er tími til að lýðræðið leiti upprunans, en í stað handauppréttinganna á Agora í Aþenu á gullöld Grikkja er að myndast möguleiki á að rétta upp hönd á netinu þess í stað. Netið býður upp á möguleika og mun gera það í auknum mæli eftir því sem persónuvernd á netinu þróast, til að auka stórum milliliðalaust lýðræði og gera það að veruleika án þeirra galla sem fylgja tíðum þjóðaratkvæðagreiðslum, þar sem kjósendur þurfa að fara á kjörstað til að greiða atkvæði. Reynslan frá Sviss segir að kjörsókn minnki þar sem of mikið umstang fylgi því að fara oft á ári á kjörstað. Þessu breytir netið, líkt og dæmi frá Bandaríkjunum sýnir.
    Kosningar á netinu í kjölfar upplýsinga- og tæknibyltinganna eru að verða að veruleika og brýnt að kanna þegar í stað kosti þeirra og galla í samhengi við þróun milliliðalauss lýðræðis.

Persónuvernd.
    Hættan er sú að tíðar atkvæðagreiðslur valdi því að fólk verði leitt á því að taka þátt í þeim, nenni ekki að fara á kjörstað oft eða nokkrum sinnum á ári. Lausnin á þeim vanda og fram hjá þeirri hættu er lýðræði á netinu. Við þróun og notkun netsins við atkvæðagreiðslur er brýnt að gæta fyllsta öryggis við persónuvernd og kanna til hlítar allar leiðir til að tryggja það í rafrænum kosningum. Gæta skal þess að áfram verði viðhafðar hefðbundnar atkvæðagreiðslur til hliðar við netkosningar til að tryggja að fólk sem sökum fátæktar, elli eða annarra aðstæðna getur ekki nýtt sér netið hafi fulla aðkomu að kosningunum. Stefna skal að því að allar þjóðaratkvæðagreiðslur fari fram á netinu, samhliða hefðbundnum kosningum eða póstkosningum og síðar meir kosningar til Alþingis og sveitarstjórna.

Gætt að minnihlutahópum.
    Mesta áhyggjuefnið er hvernig minnihlutahópum reiðir af við beint lýðræði, og sérstaklega beint lýðræði á netinu. Tryggja þarf að engir hópar verði út undan í þessari þróun enda er tilgangurinn stóri að gera fólk að betri og ábyrgari borgurum. Tölur sýna að þátttaka fólks sem er fátækt og lítið menntað er minni en annarra í þjóðaratkvæðagreiðslum, svo dæmi sé tekið. Skoða þarf sérstaklega hvernig tryggja má að kjör og aðgengi tiltekinna minnihlutahópa að samfélaginu og ákvarðanatöku innan þess versni ekki í milliliðalausu lýðræði heldur batni.

Óhófleg áhrif fjármagnsins.
    Meginviðfangsefni stjórnmálastarfsins er að komast að því hvaða lausnir flestir telja bestar og séu til mestra hagsbóta. Einfaldast er að spyrja fólkið að því beint í stað þess að fela það nokkrum fulltrúum þess. Beint lýðræði upprætir óhófleg áhrif fjársterkra og háværra hagsmunaafla sem oft hafa mikil áhrif á kjörna fulltrúa stjórnmálaflokkanna, ekki síst þegar litið er til Íslands þar sem bókhald flokkanna er lokað og fjárreiður þeirra leyndarmál, í því efni vísa flutningsmenn í frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns um fjárreiður flokkanna á 128. þingi. Miklu erfiðara er að hafa áhrif á kosningu heillar þjóðar enda erfitt að múta þjóð og rannsóknir frá Bandaríkjunum og Sviss sýna fram á að fjársterk hagsmunasamtök mega sín mun minna í þjóðaratkvæðagreiðslum en í beinum áhrifum á kjörna fulltrúa. Fjölmiðlar og borgarar landsins eiga skýlausa kröfu á að vita hvaða stórfyrirtæki hafa styrkt flokkanna og sjá þannig svart á hvítu hver ítök þeirra eru í viðkomandi flokki.
    Leynd og pukur með fjármál flokkanna grafa undan tiltrú almennings á stjórnmálum og stjórnmálamönnum og þar með lýðræðinu. Það er ekki hægt að byggja upp öflugt samfélag nema við búum við öflugt lýðræði. Ríki leynd yfir fjárreiðum stjórnmálaflokka er líklegt að það dragi úr trausti almennings gagnvart lýðræðislega kjörnum fulltrúum þjóðþinga og ekki síður gagnvart stofnunum samfélagsins, sem hafa umboð löggjafarvaldsins til að sinna eftirliti með leikreglum samfélagsins. Milliliðalaust lýðræði er leiðin til að minnka verulega áhrif fjármagnseigenda í samfélaginu og færa valdið til fólksins milliliðalaust. Vald peninganna í pólitíkinni hefur aldrei verið meira en nú. Mikilvægt er að minnka það og tryggja heilbrigða og eðlilega stjórnarhætti þar sem almannahagsmunir ráða för en ekki hagsmunir valdamikilla sérhagsmunahópa.

Ísland í fararbroddi.
    Þegar litið er til framþróunar lýðræðisins er gagnlegt að vitna til orða Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra og fyrrum alþingismanns jafnaðarmanna: „Íslendingar ættu að geta hugsað sér að verða tilraunastofa í frekari þróun lýðræðislegra stjórnarhátta vegna lýðræðishefðar okkar, menntunarstigs og fámennis þjóðarinnar sem ætti að auðvelda að láta tilraunina heppnast. Lýðræði okkar er í grundvallaratriðum vanburðugt og ófullkomið vegna þess að við höfum aldrei í lýðveldissögunni notið þeirra grundvallarmannréttinda sem felast í jöfnum atkvæðisrétti, einn maður eitt atkvæði, né heldur notið þess að geta ráðið persónuvali í kosningum. Af þessum sökum er vafalaust kominn tími til að endurmeta reynsluna og hugsa stærra. Hugmyndir um að nýta upplýsingatækni og miðlun í tilraunum með þjóðaratkvæðagreiðslur og beina þátttöku almennings, með minna vægi fulltrúalýðræðisins, eru fyllilega tímabærar og mjög áhugaverðar. Tilgangurinn er auðvitað að auka ábyrgð og sjálfsaga kjósenda, þeir yrðu að taka beina ábyrgð á afleiðingum gerða sinna með slíku vali. Það væri verið að styrkja þá sem stoð lýðræðisins sem byggist ekki aðeins á réttindum heldur líka skyldum.“ (Jón Baldvin Hannibalsson, Mbl. 25. apríl 1997.)

Jafn atkvæðaréttur.
    Um leið og við eflum beint lýðræði er nauðsynlegt að jafna atkvæðaréttinn til fulls og gera Ísland að einu kjördæmi. Fyrir því eru engin rök að atkvæði allra Íslendinga séu ekki jafngild. Misjafnt vægi atkvæða er ekkert annað en skýlaust mannréttindabrot og svartur blettur á stjórnmálum landsins. Jafn atkvæðisréttur er þó fyrst og fremst spurning um mannréttindi og með því að gera landið að einu kjördæmi væri tryggt að allir í landinu hefðu nákvæmlega sömu möguleika á að hafa áhrif á stjórn landsins, því að öll atkvæði væru jafnþung.
    Stefna ætti að því um leið og stigin yrðu fyrstu skref í átt til milliliðalauss lýðræðis að atkvæðavægi yrði jafnt með því að landið yrði gert að einu kjördæmi.

Lýðræðisform framtíðarinnar.
    Ef lýðræði er skilgreint þannig að fólkið skuli ráða, þá er milliliðalaust lýðræði mun nær upprunanum en það lýðræðisfyrirkomulag sem tíðkast hefur víðast hvar og felur í sér kosningar til löggjafar- og eða framkvæmdarvalds á nokkurra ára fresti. Til að taka nýlegt íslenskt dæmi um raunverulegt lýðræði má nefna atkvæðagreiðsluna sem átti sér stað í Reykjavík fyrir tveimur árum um framtíðarstað flugvallarins í Vatnsmýrinni. Sú atkvæðagreiðsla var merkileg tilraun í milliliðalausu lýðræði og líklegt er að hún gefi tóninn fyrir innleiðingu beins lýðræðis á sveitarstjórnarstiginu, þar sem það á allra best við og er líklegast til að taka út þroska sem lýðræðisform framtíðarinnar.
    Tæknin hefur breytt eðli og inntaki lýðræðisins. Nú er einstaklingurinn hjá jafn vel upplýstri þjóð og Íslendingar eru þess umkominn að veita álit sitt og umsögn, nánast hvenær sem er í krafti þekkingar sinnar og hæfni. Menntabyltingin og aðgengi að upplýsingum gerir þetta að veruleika og á að fleyta okkur frá fulltrúalýðræði síðustu alda til milliliðalausrar þátttöku borgaranna sjálfra við stjórnun samfélagsins.



Fylgiskjal.


Vald fólksins.
(Morgunblaðið – ritstjórnargrein,
11. febrúar 2004.)


    Lýðræði er án efa sú stjórnskipun sem leitt hefur til mestrar farsældar og framfara. Það fer ekkert á milli mála hvað átt er við með lýðræði. Orðið er gagnsætt og merkir að valdið sé fólksins: almenningur ræður. Útfærsla lýðræðis hefur hins vegar verið með ýmsu móti og það hefur þróast hægt og bítandi í aldanna rás. Í upphafi var atkvæðisrétturinn þeirra sem valdið höfðu en smám saman varð atkvæðisrétturinn víðtækari, hætti til dæmis að vera bundinn við eignir, kynferði eða kynþátt, eftir því hvar er borið niður. Þetta voru breytingar sem ekki gerðust þrautalaust.
    Þróun lýðræðis lýkur hins vegar ekki einn góðan veðurdag og sennilega á það við um flest lýðræðisríki heims að hægt er að gera betur í að færa valdið til fólksins. Við búum við svokallað fulltrúalýðræði á Íslandi sem felst í því að kjósendur kjósa sér fulltrúa til setu á Alþingi og fara þeir með valdið fyrir hönd umbjóðenda sinna. Það er ef til vill einföldun en segja má að kjósandinn hafi valdið á fjögurra ára fresti en þess á milli fara aðrir með vald hans.
    Samfylkingin lagði fram tillögur um breytingar á stjórnarskránni á Alþingi í haust og fjallar Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, um þær í grein í Morgunblaðinu í gær. Ein tillaga flokksins er að í „stjórnarskrá verði mælt fyrir um þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að tiltekinn hluti landsmanna geti krafist hennar“. Þessa tillögu rökstyður Össur svo: „Í nútímalýðræði verða borgararnir að eiga kost á því að segja álit sitt á þeim málum sem mestu varða með öðrum hætti en einungis að kjósa fulltrúa á Alþingi á fjögurra ára fresti. Í stefnumótun Samfylkingarinnar um lýðræði var það því ein meginniðurstaða að nauðsynlegt væri að rýmka rétt þegnanna til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu við tilteknar aðstæður. Svipuð viðhorf er að finna í öðrum flokkum og áhersla á þau fer vaxandi. Færi svo að Samfylkingin tæki þátt í endurskoðun á stjórnarskránni er þetta t.d. meðal þeirra atriða sem flokkurinn legði einna þyngsta áherslu á af þeim hugmyndum sem Samfylkingin kynnti í tillögunni sem hún flutti í haust í tilefni af heimastjórnarafmælinu.“
    Össur hefur áður fjallað um það, meðal annars á síðum Morgunblaðsins í apríl 2002, að hann vilji efla lýðræðið og sérstaklega nefnt að tæknin bjóði upp á „stórkostlegustu framfarir í lýðræðisþróun veraldarinnar frá því almenningur fékk almennan rétt til að kjósa sér fulltrúa til þjóðþinganna“.
    Þessi ummæli eru í anda þeirra hugmynda sem Morgunblaðið hefur sett fram um milliliðalaust lýðræði og eiga rætur að rekja til sérstaks fylgiblaðs sem fylgdi blaðinu vorið 1997 og var þýðing rækilegrar umfjöllunar sem birst hafði í vikuritinu The Economist skömmu áður. Nú er svo komið að tæknin býður upp á það að hægt er að ganga til kosninga með mun minni fyrirhöfn en áður og upplýsingar eru kjósendum jafnaðgengilegar og hinum kjörnu fulltrúum. Almenningur getur því hæglega tekið málefnalega afstöðu til flókinna og umdeildra mála. Það er því tímabært að þessi mál verði tekin til endurskoðunar og lýðræðið eflt.