Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 765. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1153  —  765. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um varðveislu Hólavallagarðs.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Sólveig Pétursdóttir,
Össur Skarphéðinsson, Jónína Bjartmarz, Guðmundur Hallvarðsson,
Jóhanna Sigurðardóttir, Ögmundur Jónasson, Magnús Þór Hafsteinsson,
Guðrún Ögmundsdóttir, Mörður Árnason, Helgi Hjörvar,
Ágúst Ólafur Ágústsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til að vinna að því að tryggja varðveislu og uppbyggingu og kynningu á þeim menningarsögulegu verðmætum sem eru fólgin í kirkjugarðinum við Suðurgötu, Hólavallagarði. Í nefndinni eigi sæti einn fulltrúi frá menntamálaráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og samgönguráðuneyti. Auk þeirra sitji í nefndinni fulltrúi frá Fornleifavernd ríkisins, Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma og Reykjavíkurborg en forsætisráðherra skipi formann. Nefndin meti einnig hvort setja skuli lög um þjóðargersemar sem gildi m.a. um garðinn og hugi að því að fá hann viðurkenndan sem „Evrópuminjar“ í ljósi þess hve einstakur hann er í Evrópu.


Greinargerð.

    Kirkjugarðurinn við Suðurgötu, Hólavallagarður, er „stærsta og elsta minjasafn“ Reykjavíkur bendir Björn Th. Björnsson listfræðingur á í bók sinni Minningarmörk í Hólavallagarði.
    Suðurgötugarður var aðalkirkjugarður Reykjavíkur frá árinu 1838 en árið 1932 var búið að úthluta öllum leiðum í garðinum og hafin ný úthlutun í Fossvogsgarði. Enn er þó jarðsett í frátekin leiði í Suðurgötugarði og er fyrirsjáanlegt að svo verði enn um sinn.
    Mikilvægt er að varðveita kirkjugarðinn fyrir komandi kynslóðir. Það er jafnframt þýðingarmikið fyrir sögu Íslands og menningu. Minningarmörkin segja sína sögu um þróun bæjarins og fólkið sem lifði þar og bjó fyrrum. Margir legsteinar hljóta að hafa kostað stórfé þegar þeir voru settir upp og sýna hvernig fyrri kynslóðir mátu minningu látinna. Hverfi minnismerkin hverfur einnig hluti sögunnar.
    Í janúar 2003 samþykkti borgarráð Reykjavíkur deiliskipulag sem þróunarhópur Hólavallagarðs hafði látið vinna. Í því er gert ráð fyrir að Hólavallagarður njóti hverfisverndar skv. 9. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, og ákvæðum skipulagsreglugerðar, nr. 400/1998. Hverfisvernd er ekki formleg friðlýsing en ber að skoða sem viljayfirlýsingu borgaryfirvalda um að fara að öllu með gát sem umsjónaraðila garðsins. Með hverfisverndinni voru settar reglur um umgengni og þróun garðsins. Við undirbúning deiliskipulagsins var gerð úttekt á minningarmörkum í garðinum og úttekt á trjágróðri, en hvort tveggja eru mikilvægar forsendur frekari friðunar.
    Í skýrslu sem gerð var um minningarmörk í Hólavallagarði segir að á því leiki vart vafi að garðurinn sé með merkustu kirkjugörðum hérlendis og jafnvel þótt víðar væri leitað í Norður-Evrópu. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Fyrst ber að nefna að engin meiri háttar röskun hefur orðið á garðinum frá því að hann var vígður ef frá er talin lagning stígs gegnum garðinn frá Ljósvallagötu að Suðurgötu, en sú framkvæmd var nauðsynleg til að bæta aðkomu að garðinum. Garðurinn heldur því sínum upphaflega svip frá því að fyrst var grafið og þar til lokið var við síðustu stækkun hans í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar. Ólíkt því sem sjá má í eldri kirkjugörðum á Norðurlöndum hefur elsti hluti garðsins verið látinn algerlega óhreyfður, stígar ekki verið skipulagðir og engir hlutar hans sléttaðir til að koma fyrir bekkjum eða öðru slíku. Heildarsvip garðsins hefur því ekki verið raskað og gönguferð milli minningarmarka í garðinum er því sem ferð í tíma þar sem sjá má þróunina í gerð þeirra, auk þess sem garðurinn er heimild um list- og táknfræði, persónusögu og ættfræði og stefnur í byggingarlist, auk annars sem nefna mætti.
    Hólavallagarður er einnig mjög gróinn og mun vera þar að finna hátt á annað hundrað plantna, og er grasafræðin eitt af því sem full ástæða væri að rannsaka og þá gildi garðsins sem grasagarðs. Í deiliskipulagi um garðinn segir um gróðurinn: „Hin röksemdin fyrir hverfisvernd garðsins er vegna gróðursins í garðinum. Trjárækt á Íslandi varð ekki almenn
fyrr en eftir aldamótin 1900. Gróðursetning í garðinum hófst að marki á árunum milli stríða. Í elsta hluta garðsins eru tegundir sem eiga rætur sínar í tilraunum frá þeim tíma. Í öðrum hluta garðsins er að finna einkennandi gróður frá eftirstríðsárunum. Auk þess er í garðinum ákaflega fjölbreytilegur blómgróður sem á rætur sínar að rekja til heimilisgarða á síðustu öld.“
    Óli Valur Hansson, fyrrverandi garðyrkjuráðunautur, gerði úttekt á trjágróðri í garðinum árið 2000. „Á horni Suðurgötu og Hringbrautar er grenilundur sem er frá því 1951, elsti sitkagrenilundur í Vesturbænum. Hann ber að varðveita vegna þess að trén eru um margt einstök sem kvæmi. Þau lifðu t.d. af frostið 1963.“
    Annað sem gerir Hólavallagarð mjög merkan er að þar er að finna tiltölulega mikið af járnsteyptum minningarmörkum, aðallega krossum, auk fjölda járnsteyptra grindverka. Hlutfallslega eru mörg slík minningarmörk varðveitt hér á landi en erlendis hafa pottjárnskrossar og -girðingar oft farið forgörðum af ýmsum ástæðum þar sem víða var öllu járni í kirkjugörðum safnað saman í styrjöldum og það brætt til hergagnagerðar.
    Fjölmörg grindverk úr smíðajárni eru einnig í garðinum og eru þau merk heimild um handverk og hönnun gömlu íslensku járnsmiðanna. Garðurinn er því merk söguleg heimild um ýmsar iðngreinar, svo sem járnsmíði. Í deiliskipulagi um garðinn segir: „Önnur meginrökin fyrir því að lýsa garðinn hverfisverndaðan er að í garðinum hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn af minningarmörkum á Íslandi og þó víðar væri leitað. Þau gefa mjög gott yfirlit um þróun stílbrigða og handbragðs sem nær yfir nærri 170 ár tímabil. Garðurinn hefur enn fremur verið skilgreindur sem eitt mesta útiminjasafn landsins. Einstök minnismerki eru auk þess mikilvæg sem sýnishorn handverks í evrópsku samhengi (járnkrossar og girðingar).“
    Á mörgum legsteinum frá því um miðbik síðustu aldar er að finna lágmyndir af þeim sem þar hvíla og eru margar þeirra eftir listamennina Einar Jónsson og Ríkarð Jónsson. Eru þessar lágmyndir því merkar heimildir um list þeirra.
    Ástand minningarmarkanna í Hólavallagarði er á heildina litið gott. Af öllum hinum mikla fjölda minningarmarka í garðinum eru örfá brotin eða stórskemmd. Mikill meiri hluti legsteinanna og járnkrossanna er í góðu ástandi. Það þarf að huga að því vernda og viðhalda garðinum svo að komandi kynslóðir fái notið þeirrar þjóðargersemar sem garðurinn er.

Verkefni nefndarinnar.
    Verkefni nefndarinnar skal vera að gera tillögur um hvernig best megi varðveita einstakt menningarsögulegt yfirbragð garðsins vegna minningarmarka og ræktunarsögu. Henni ber að líta til annarra landa um verndun og nýtingu gamalla sögulegra kirkjugarða í ljósi þess að þessi garður er elsti óspillti kirkjugarður í Norður-Evrópu og jafnvel Evrópu allri. Margvíslegar úttektir hafa verið unnar á ýmsum þáttum garðsins á vegum Þjóðminjasafns Íslands, skipulagsnefndar kirkjugarða, nú kirkjugarðaráðs, Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, Fornleifaverndar ríkisins, þróunarnefndar Hólavallagarðs og jafnvel fleiri, svo sem á gróðri, járnverki, minningarmörkum og gerð korts, sem rétt er að nefndin kynni sér og nýti í vinnu sinni.
    Nefndin skal gera tillögur að breytingum á lögum sem garðinn varða í ljósi verndunar hans, þó svo að hann sé enn í notkun og geti verið áfram um einhver ár eða áratugi, svo sem undir duftker. Einnig skal nefndin gera tillögur að lagabreytingum, m.a. í þá veru að hægt verði að friða garðinn og aðra gamla merka garða, t.d. Alþingishússgarðinn. Samkvæmt íslenskum lögum er unnt að friða gömul hús en ekki garða. Á meðan grafið er í kirkjugarð er hann ekki verndaður og má slétta leiði 75 árum eftir að gröf var tekin, eins og lög eru nú. Til var merkur garður í miðri höfuðborginni, Víkurgarður, en hann er að mestu glataður. Því er mikilvægt að grípa til lagasetningar og aðgerða á meðan Hólavallagarður er enn í svo upprunalegu horfi.
    Nefndin þarf að meta undir hvaða stofnun eða stofnanir garðurinn skuli heyra. Í sumum nágrannalöndum heyra sögufrægir kirkjugarðar undir stjórn menningararfs, svo sem í Danmörku, eða undir lög um þjóðararf eins og í Bretlandi (National Heritage Act). Í Noregi heyra slíkir garðar undir lög um menningarminjar og eru undir yfirstjórn umhverfisráðuneytisins þar.
    Huga þarf að því hvernig garðurinn geti nýst sem grasagarður fyrir almenning til að njóta fjölbreytileikans og námsmenn til að læra um flóru landsins. Í garðinum eru ljóslifandi dæmi um fjölbreytilegt handverk, steinsmíði, myndhögg, járnsmíði og fleiri list- og iðngreinar. Nefndin geri tillögur um það hvernig hægt er að varðveita, kynna og kenna námsmönnum sögu og eðli þessara greina og hvernig hægt væri að gera kynnisferðir í garðinn að lið í list- og iðnnámi. Sama á við um söguna sem hefur víða skírskotun í garðinum og ætti nefndin að gera tillögur um hvernig gera mætti garðinn hluta af sögukennslu og bókmenntafræðslu. Í garðinum er hinsta hvíla marga þjóðskálda, stjórnmálamanna, embættismanna, presta og biskupa, listamanna og fleiri sögufrægra manna.
    Einnig ber að huga að nýtingu garðsins sem aðdráttarafls fyrir ferðamenn eins og gert er víða erlendis þar sem gamlir og sögulegir kirkjugarðar draga til sín þúsundir ferðamanna árlega. Það eru mörg dæmi um kynningarferðir undir mismunandi formerkjum og ljóst að áhuga skortir ekki hjá Íslendingum eins og sýndi sig þegar Þjóðminjasafnið bauð upp á kynnisferðir um garðinn og Fornleifavernd ríkisins hefur einnig veitt hópum leiðsögn um garðinn, t.d. yfirmönnum erlendra kirkjugarða. Vegna þess hve garðurinn er einstakur er ekki ólíklegt að hann hafi einnig aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn. Í ljósi þess hve sérstæður Hólavallagarður er í Evrópu ætti að huga að því að fá hann viðurkenndan sem „Evrópuminjar“ (e. European Heritage Program).
    Hólavallagarður er undir yfirumsjón Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, en stofnuð hefur verið þróunarnefnd skipuð fulltrúum frá Fornleifavernd ríkisins, Biskupsstofu og Reykjavíkurborg, auk KGRP, sem er til ráðgjafar við að móta verndarstefnu í garðinum. Mikilvægt er að nefndin vinni í góðu samstarfi við þessa aðila.
    Vel væri við hæfi að samþykkja tillögu sem þessa á 100 ára afmæli heimastjórnar í ljósi þess sögulega mikilvægis sem garðurinn gegnir, en þar hvíla ýmsir af helstu baráttumönnum og sjálfstæðishetjum Íslendinga, svo sem Jón Sigurðsson forseti og Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands, auk ýmissa annarra framámanna þjóðarinnar.
    Í greinargerð þessari er m.a. stuðst við skýrsluna „Hólavallagarður, kirkjugarðurinn við Suðurgötu: Skráning og rannsókn minningarmarka“ sem kom út í röð rannsóknarskýrslna Þjóðminjasafns árið 2002, eftir Gunnar Bollason, rit Björns Th. Björnssonar „Minningarmörk í Hólavallagarði“, ýmsar greinar úr Bautasteini, riti Kirkjugarða Reykjavíkur, og fundargerðir og fleiri gögn sem garðinn varða.