Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 571. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1232  —  571. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um samvinnu Vestur-Norðurlanda í heilbrigðismálum.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Birgi Ármannsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.
    Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni, í samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands, verði falið að vinna að aukinni samvinnu í heilbrigðismálum á Vestur-Norðurlöndum og að leita leiða til að löndin geti samnýtt krafta sína. Þá er lagt til að heilbrigðisyfirvöld gefi árlega út skýrslu um samstarfið. Tillagan byggist á ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 1/2003 sem samþykkt var á ársfundi þess sem haldinn var 14.–16. ágúst 2003.
    Drífa Hjartardóttir, Magnús Stefánsson og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 24. mars 2004.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Jónína Bjartmarz.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Steingrímur J. Sigfússon.


Einar K. Guðfinnsson.