Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 612, 132. löggjafarþing 363. mál: olíugjald og kílómetragjald o.fl. (framlenging á lækkun gjalds).
Lög nr. 126 19. desember 2005.

Lög um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum.


1. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða í lögunum, sbr. lög nr. 70/2005, orðast svo:
     Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga þessara skal fjárhæð olíugjalds vera 41 kr. á hvern lítra af olíu frá gildistöku laga þessara til 1. júlí 2006.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 9. desember 2005.