132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1013 — 361. mál.
Frumvarp til laga
um faggildingu o.fl.
(Eftir 2. umr., 29. mars.)
I. KAFLI
Gildissvið o.fl.
1. gr.
Gildissvið.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. Faggilding: Formleg viðurkenning þar til bærs stjórnvalds á því að aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni varðandi samræmismat.
2. Góðar starfsvenjur við rannsóknir: Gæðakerfi sem varðar skipulagsferli og skilyrði fyrir áætlun, framkvæmd, eftirlit, skráningu, gagnageymslu og skýrslugjöf að því er varðar rannsóknir á umhverfisöryggi og heilbrigðisrannsóknir sem ekki eru klínískar.
3. Prófun: Greining á einum eða fleiri eiginleikum sýnis sem metnir eru samkvæmt fyrir fram gefinni aðferð.
4. Samræmismat: Mat á því hvort vara, ferli, kerfi eða aðili uppfylli kröfur.
5. Skoðun: Athugun á vöruhönnun, vöru, ferli eða uppsetningu búnaðar og ákvörðun á samræmi þess við tilgreindar kröfur, eða almennar kröfur, og skal þá byggt á faglegum úrskurði.
6. Tilkynntur aðili: Aðili sem stjórnvöld hafa tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA, framkvæmdastjórnar ESB og annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins að uppfylli viðeigandi kröfur til þess að fást við samræmismat samkvæmt tiltekinni tæknilegri reglugerð.
7. Tilnefndur aðili: Aðili sem stjórnvald hefur veitt tilnefningu.
8. Tilnefning: Heimild sem stjórnvald veitir aðila til að stunda tiltekna starfsemi við samræmismat.
9. Vottun: Formleg staðfesting þriðja aðila á því að vara, ferli, kerfi eða aðili uppfylli kröfur.
II. KAFLI
Framkvæmd faggildingar o.fl.
3. gr.
Faggildingarsvið.
Faggildingarsvið veitir faggildingu fyrir skoðunarstofur, prófunarstofur, kvörðunarstofur og vottunarstofur og annast mat á tilnefndum aðilum, þ.e. hæfni þeirra og hæfi til að starfa samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda á því sviði sem starfsemi hins tilnefnda aðila tekur til. Faggildingarsvið annast einnig mat á góðum starfsvenjum við rannsóknir og önnur verkefni sem kveðið er á um í lögum þessum.
Viðskiptaráðherra fer með yfirstjórn mála sem lög þessi taka til.
4. gr.
Starfsreglur um faggildingu.
Ráðherra setur í reglugerð starfsreglur sem faggildingarsviði ber að starfa eftir og tilvísanir til þeirra staðla sem um starfsemina eiga að gilda. Þá gefur faggildingarsvið út verklags- og leiðbeiningarreglur í samræmi við viðkomandi staðla þegar það á við. Auk þess ber faggildingarsviði að hafa til hliðsjónar leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af Evrópusamtökum um faggildingu (EA) eða öðrum alþjóðlega viðurkenndum samtökum sem miða að því að samræma kröfur sem gerðar eru til faggildingar.
Faggildingarsvið skal birta upplýsingar um aðila sem eru faggiltir og til hvaða sviða faggilding þeirra tekur.
5. gr.
Umsókn um faggildingu.
Faggildingarsvið tekur ákvörðun um það hvort veita skuli faggildingu á grundvelli matsskýrslu og þeirra úrbóta sem umsækjandi hefur gert, þegar það á við.
Nú synjar faggildingarsvið umsókn um faggildingu og skal synjunin þá rökstudd skriflega. Synjun má skjóta til ráðherra.
6. gr.
Breytingar á skilyrðum faggildingar.
7. gr.
Niðurfelling faggildingar.
Faggildingarsviði ber að birta tilkynningu um það opinberlega þegar leyfi til faggildingar er fellt niður.
8. gr.
Eftirlit.
9. gr.
Málsmeðferð við mat á tilnefndum aðilum o.fl.
10. gr.
Um gagnkvæma viðurkenningu á faggildingu.
11. gr.
Faggildingarmerki.
Ráðherra samþykkir merki faggildingarsviðs og setur reglugerð sem um það skal gilda, m.a. um útlit merkisins, stöðu þess og notkun.
12. gr.
Gjaldskrá fyrir þjónustu faggildingarsviðs.
1. Umsóknar- og skráningargjald: Gjald fyrir móttöku, skráningu og yfirferð umsóknar og fylgiskjala, auk álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar á umsókn og fylgigögnum hennar, svo og undirbúningsheimsókn til umsækjanda þegar það á við.
2. Faggildingargjald: Gjald fyrir mat á faggiltum eða tilnefndum aðila en það felur í sér val á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mat á gæðakerfi og tæknilegri starfsemi umsækjanda, skýrslugerð, ákvörðun um faggildingu eða mat á tilnefndum aðila, og fyrir stjórn faggildingar eða mats á tilnefndum aðila.
3. Eftirlitsgjald: Gjald fyrir umsýslu við eftirlit með faggiltum eða tilnefndum aðila, val á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mat á gæðakerfi og tæknilegri starfsemi hins faggilta eða tilnefnda aðila, skýrslugerð, ákvörðun um faggildingu eða mat á tilnefndum aðila, og fyrir stjórn eftirlitsins.
4. Gjald fyrir mat á góðum starfsvenjum við rannsóknir: Gjald fyrir mat á gæðakerfi sem varðar skipulagsferli og skilyrði fyrir áætlun, framkvæmd, eftirlit, skráningu, gagnageymslu og skýrslugjöf að því er varðar rannsóknir á umhverfisöryggi og heilbrigðisrannsóknir sem ekki eru klínískar.
Gjaldskrá samkvæmt þessari grein skal m.a. taka mið af vinnutímagjaldi faggildingarsviðs, ferðakostnaði, efniskostnaði og öðrum útlögðum kostnaði þegar það á við og hlutdeild í venjulegum stjórnunarkostnaði, þ.m.t. kostnaði við húsnæði og aðgang að nauðsynlegum tækjum og búnaði.
Ráðherra samþykkir gjaldskrá samkvæmt þessari grein og birtir í B-deild Stjórnartíðinda.
III. KAFLI
Tilkynntir aðilar og samræmismat.
13. gr.
Tilkynntur aðili.
Ráðherra á viðeigandi stjórnsýslusviði tekur ákvörðun um að tilkynna aðila, sbr. 6. tölul. 2. gr., sem uppfylla þau skilyrði sem kveðið er á um í lögum og reglugerðum sem um starfsemi þeirra gilda.
Ef tilkynntur aðili brýtur af sér eða fullnægir ekki lengur þeim skilyrðum sem starfsleyfi hans byggist á getur viðkomandi ráðherra ákveðið að afturkalla tilnefningu sína á tilkynntum aðila til Eftirlitsstofnunar EFTA, framkvæmdastjórnar ESB og aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins.
14. gr.
Samræmismat.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
15. gr.
Þagnarskylda.
16. gr.
Viðurlög.
17. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum nr. 100/1992, um vog, mál og faggildingu:
1. Orðið „faggildingu“ í 1. gr. fellur brott.
2. 2. efnismgr. 2. gr. fellur brott.
3. IV. kafli fellur brott.
4. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr.:
a. 4. tölul. fellur brott,
b. orðin „faggildingu og“ í 5. tölul. falla brott,
c. orðin „og á sviði faggildingar“ í 6. tölul. falla brott,
d. orðin „og faggildingar“ í 7. tölul. falla brott.
5. Heiti laganna verður: Lög um vog og mál.
Ákvæði til bráðabirgða.