Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1090, 132. löggjafarþing 379. mál: bílaleigur (flutningur leyfisveitinga o.fl.).
Lög nr. 26 12. apríl 2006.
Bílaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem almenningi eða fyrirtækjum er boðið til leigu skráningarskylt ökutæki, að jafnaði um skemmri tíma, sbr. þó 2. mgr. 6. gr.
Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé sérstaklega skráð hjá Umferðarstofu sem ökutæki sem leigt er í atvinnuskyni án ökumanns.
Leigusamningur milli bílaleigu og leigutaka skal að jafnaði takmarkast við þrjár vikur ef ökutæki sem leigt er hefur notið lægri vörugjalda, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o. fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum. Ef ökutæki hefur ekki notið lægri vörugjalda eða 15 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu ökutækis sem notið hefur lægri vörugjalda, sbr. 1. málsl., er bílaleigu heimilt að leigja það til lengri tíma.
Stjórnsýslukæra.
Ákvörðunum Vegagerðarinnar samkvæmt lögum þessum verður skotið til samgönguráðherra. Um málsmeðferð fer eftir ákvæðum
stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Ákvæði til bráðabirgða.
Við gildistöku laga þessara skulu starfsleyfi sem gefin hafa verið út halda gildi sínu í samræmi við leyfistímann.
Þingskjal 1090, 132. löggjafarþing 379. mál: bílaleigur (flutningur leyfisveitinga o.fl.).
Lög nr. 26 12. apríl 2006.
Lög um breytingu á lögum um bílaleigur, nr. 64/2000, með síðari breytingum.
1. gr.
1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Bílaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem almenningi eða fyrirtækjum er boðið til leigu skráningarskylt ökutæki, að jafnaði um skemmri tíma, sbr. þó 2. mgr. 6. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Í stað orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
- Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: 25.000 kr.
- Í stað orðsins „Samgönguráðuneytið“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
- 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Bílaleiga á grundvelli starfsleyfis skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma.
- Á eftir 1. málsl. 4. mgr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Afgreiðslutími skal auglýstur á skýran og ótvíræðan hátt og við hann skal staðið.
- Í stað orðsins „samgönguráðuneytis“ í 1. málsl. 5. mgr. og orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
3. gr.
Í stað orðsins „ráðherra“ í 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: Vegagerðin.4. gr.
Á eftir 2. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein sem orðast svo:Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé sérstaklega skráð hjá Umferðarstofu sem ökutæki sem leigt er í atvinnuskyni án ökumanns.
5. gr.
Á eftir 1. mgr. 6. gr. laganna kemur ný málsgrein sem orðast svo:Leigusamningur milli bílaleigu og leigutaka skal að jafnaði takmarkast við þrjár vikur ef ökutæki sem leigt er hefur notið lægri vörugjalda, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o. fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum. Ef ökutæki hefur ekki notið lægri vörugjalda eða 15 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu ökutækis sem notið hefur lægri vörugjalda, sbr. 1. málsl., er bílaleigu heimilt að leigja það til lengri tíma.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðsins „Samgönguráðherra“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
- Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
7. gr.
Við lögin bætist ný grein sem verður 10. gr. laganna og orðast svo ásamt fyrirsögn:8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 3. apríl 2006.