Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 404, 135. löggjafarþing 87. mál: Lánasýsla ríkisins (afnám stofnunarinnar og flutningur verkefna til Seðlabanka Íslands).
Lög nr. 138 18. desember 2007.
Fjármálaráðherra fer með lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana innan lands og utan, útgáfu og sölu ríkisskuldabréfa á innlendum markaði og aðra skuldaumsýslu fyrir ríkissjóð, svo og endurlán lánsfjár, ríkisábyrgðir og Ríkisábyrgðasjóð.
Fjármálaráðherra tekur við almennum réttindum og skyldum Lánasýslu ríkisins og við samningum við þriðja aðila eftir því sem við getur átt samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Þingskjal 404, 135. löggjafarþing 87. mál: Lánasýsla ríkisins (afnám stofnunarinnar og flutningur verkefna til Seðlabanka Íslands).
Lög nr. 138 18. desember 2007.
Lög um breyting á lögum nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins, með síðari breytingum.
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Fjármálaráðherra fer með lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana innan lands og utan, útgáfu og sölu ríkisskuldabréfa á innlendum markaði og aðra skuldaumsýslu fyrir ríkissjóð, svo og endurlán lánsfjár, ríkisábyrgðir og Ríkisábyrgðasjóð.
2. gr.
Í stað orðanna „Í störfum sínum skal Lánasýsla ríkisins stefna“ í 2. gr. laganna kemur: Lánasýsla ríkisins skal stefna.3. gr.
3., 4., 8. og 10. gr. laganna falla brott og breytist greinatala samkvæmt því.4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Í stað orðanna „Lánasýsla ríkisins“ í 1. mgr. kemur: Fjármálaráðherra.
- Orðin „samkvæmt ákvörðun fjármálaráðherra“ í 1. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „Lánasýslu ríkisins“ í 2. mgr. kemur: Fjármálaráðherra.
5. gr.
Í stað orðanna „Lánasýslu ríkisins“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. og í 2. og 3. mgr. 6. gr. laganna kemur: fjármálaráðherra.6. gr.
Í stað orðanna „Lánasýsla ríkisins“ í 1. mgr. 7. gr. laganna og orðanna „Lánasýslu ríkisins“ í 2. mgr. sömu greinar kemur: fjármálaráðherra.7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Orðið „erlendra“ fellur brott.
- Í stað orðanna „Lánasýslu ríkisins eru falin“ kemur: fjármálaráðherra fer með samkvæmt lögum þessum.
8. gr.
Orðin „og starfsemi Lánasýslu ríkisins“ í 11. gr. laganna falla brott.9. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:Fjármálaráðherra tekur við almennum réttindum og skyldum Lánasýslu ríkisins og við samningum við þriðja aðila eftir því sem við getur átt samkvæmt ákvæðum laga þessara.
10. gr.
Heiti laganna verður: Lög um lánasýslu ríkisins.11. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008. Við gildistöku laga þessara verður Lánasýsla ríkisins lögð niður.Samþykkt á Alþingi 6. desember 2007.