Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 514, 135. löggjafarþing 234. mál: aukatekjur ríkissjóðs (lagatilvísanir og fjárhæð gjalds fyrir vegabréfaþjónustu).
Lög nr. 164 21. desember 2007.
Þingskjal 514, 135. löggjafarþing 234. mál: aukatekjur ríkissjóðs (lagatilvísanir og fjárhæð gjalds fyrir vegabréfaþjónustu).
Lög nr. 164 21. desember 2007.
Lög um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:- 2. tölul. fellur brott.
- 3. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir viðskiptabanka og sparisjóði, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002110.000 kr.
- 4. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir lánafyrirtæki, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002110.000 kr.
- 5. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir rafeyrisfyrirtæki, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002110.000 kr.
- 6. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir verðbréfafyrirtæki, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002110.000 kr.
- 7. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir verðbréfamiðlun, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/200255.000 kr.
- 8. tölul. fellur brott.
- 9. tölul. verður svohljóðandi: Leyfisbréf fyrir rekstrarfélög verðbréfasjóða, sbr. 7. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/200255.000 kr.
- 15. tölul. fellur brott.
- Við greinina bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Leyfi til reksturs leiktækjastaðar5.500 kr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 14. gr. laganna:- 4. tölul. fellur brott.
- Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 5.–13. tölul. kemur: 5.200 kr.
- Í stað orðsins „Vegabréfsáritun“ í 5., 6., 7., 9., 10., 11. og 12. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun.
- Í stað orðanna „Almenn vegabréfsáritun“ í 8. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um almenna vegabréfsáritun.
- Í stað orðsins „Vegabréfsáritanir“ í 13. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritanir.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi að undanskildum a-lið 1. gr. og a-lið 2. gr. sem öðlast gildi 1. janúar 2008.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2007.