Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 346, 136. löggjafarþing 114. mál: stjórn fiskveiða (aukin heimild til flutnings aflamarks milli ára).
Lög nr. 143 16. desember 2008.
Þingskjal 346, 136. löggjafarþing 114. mál: stjórn fiskveiða (aukin heimild til flutnings aflamarks milli ára).
Lög nr. 143 16. desember 2008.
Lög um breytingu á lögum nr. 116 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:- Í stað hlutfallstölunnar „20%“ í 3. mgr. kemur: 33%.
- Í stað orðanna „og úthafsrækju“ í 4. mgr. kemur: úthafsrækju og humars.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. desember 2008.