Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 389, 136. löggjafarþing 169. mál: niðurfelling laga um kísilgúrverksmiðju við Mývatn og ráðstöfun eigna Kísilgúrsjóðs.
Lög nr. 152 23. desember 2008.

Lög um niðurfellingu laga um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, nr. 80/1966, með síðari breytingum, og um ráðstöfun eigna Kísilgúrsjóðs.


1. gr.

     Kísilgúrsjóði skal slitið og starfsemi hans lögð niður við gildistöku laga þessara.

2. gr.

     Iðnaðarráðherra er heimilt að ráðstafa eignum sjóðsins með samningi við Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. Samningurinn skal hafa það að markmiði að efla atvinnulíf og nýsköpun í Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppi og Norðurþingi.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.
     Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, nr. 80/1966, með síðari breytingum.

Samþykkt á Alþingi 18. desember 2008.