Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 474, 136. löggjafarþing 262. mál: Ríkisútvarpið ohf. (fjárhæð sérstaks gjalds).
Lög nr. 174 29. desember 2008.
Þingskjal 474, 136. löggjafarþing 262. mál: Ríkisútvarpið ohf. (fjárhæð sérstaks gjalds).
Lög nr. 174 29. desember 2008.
Lög um breytingu á lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:- Í stað orðsins „Tekjustofnar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Tekjur.
- Á eftir 1. málsl. 1. tölul. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Gjaldið rennur í ríkissjóð.
- Í stað fjárhæðarinnar „14.580 kr.“ í 3. málsl. 1. tölul. 1. mgr. kemur: 17.200 kr.
- Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í stað tíu gjalddaga skal gjalddagi einstaklinga vera einn, 1. ágúst ár hvert. Dragist framlagning álagningarskrár fram yfir 1. ágúst færist gjalddagi til fyrsta dags næsta mánaðar eftir framlagningu.
- 3. mgr. fellur brott.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tekjur.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.Samþykkt á Alþingi 22. desember 2008.