Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1379, 139. löggjafarþing 769. mál: landsdómur (kjörtímabil dómara).
Lög nr. 41 9. maí 2011.
Dómarar sem eiga sæti í landsdómi þegar Alþingi hefur samþykkt málshöfðun gegn ráðherra og varamenn þeirra skulu ljúka meðferð þess máls þrátt fyrir að kjörtímabil þeirra sé á enda.
Þingskjal 1379, 139. löggjafarþing 769. mál: landsdómur (kjörtímabil dómara).
Lög nr. 41 9. maí 2011.
Lög um breytingu á lögum um landsdóm, nr. 3/1963, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Dómarar sem eiga sæti í landsdómi þegar Alþingi hefur samþykkt málshöfðun gegn ráðherra og varamenn þeirra skulu ljúka meðferð þess máls þrátt fyrir að kjörtímabil þeirra sé á enda.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 5. maí 2011.